Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Blaðsíða 64
64
þetta hafi um fleiri aldir verið í
auðn.
8. Grundarkot (261—62.) Var
sjálfstætt lögbýli, er var keypt
undir Hjallaland; liggur norðan-
við Hjallaland. Grundarkot fór í
auðn af skriðuhlaupi í október
1899.
9. Skriðukot eða Skúlakot
(-63).
10. Skammbeinskot (263—64).
11. Steinkot (264).
12. Skíðastaðir (265). í Land-
námu eru Skíðastaðir taldir land-
námsjörð. Hvar þeir hafa verið,
er ekki með öllu ljóst.
Fitjaannáll, Skarðsárannáll og
Húnvetninga-sagnir telja að Skíða-
staðir hafi eyðilagzt í skriðuhlaupi
1546. — Á tveim stöðum út með
fjallinu á milli Bjarnarstaða og
Axlar eru líkur fyrir túnblettum og
rústum; benda þær nyðri fremur
á fjárhús eða beitarhús.
13. Gullberustaðir (266—67).
14. Geitaból (268). Býli þetta
hefir verið síðar byggt upp, og
fram á seinni hluta 19. aldar ver-
ið við beitarhús frá Brekku. Nú
um langt skeið í auðn sem býli.
15. Hnausasel á Sauðardal;
byggt frá Hnausum fram yfir alda-
mótin 1900; nú í auðn.
16. Helgavatnssel, vestur við
Gijúfurá, var byggt frá Helgavatni
fram á seinni hluta 19. aldar. Nú
í auðn.
17. Bárðarsel, vestur-við Gljúf-
urá, var byggt frá Steinnesi og
Sveinsstöðum fram á seinni hluta
19. aldar.
18. Þingeyrasel við Gljúfurá
hefir verið byggt frá Þingeyr-
um, en stundum hefir enginn verið
þar. Nú, 1930, var það byggt fram
í Nóvember. Varð bóndinn, Níels
Gunnarsson úti; hrapaði í Mel-
rakkadal. Fjölskyldan flutti burtu,
og selið féll í eyði. Tún er talið
þar, að gefi af sér allt að 60 hest-
um. Verður sennilega ekki byggt.
Þessara selja er ekki getið í jarða-
bókum.
7. Vatnsdalshreppur hinn forni.
Áshreppur.
1. Gilstaðasel var byggt frá
Gilstöðum við Gljúfurá fram á
seinni hluta 19. aldar. Nú í auðn.
2. Kornsársel er í kvíslamót-
unum, þar sem Kornsá og Kleppa
koma saman. Lárus Blöndal, þá
sýslumaður á Kornsá, lét byggja
það um 1890. Selið var rifið um
aldamótin 1900. Þar var ekkert
túnmál. Síðasti dvalarmaður þar
var Jakob Árnason.
3. Oddnýjarkot (277).
4. Hringhóll (277).
5. Nautabú; stendur ekki í
jarðabókum. Þetta fornbýli liggur
útundir Litlu-Kornsá í Undirfells-
landi; [talið landnámsbýli (Þóris
hafursþjós). Túnmál er þar all-