Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 69
69
því allt benda á að jörð þessi
hafi lengst af byggð verið. Nú
er hún komin í auðn; hefir ekki
byggð verið frá 1927. Töðufall
talið, að þar hafi verið 60—80
hestar.
4. Kúlusel er í Auðkúlu-landi
fram á hálsinum. Þess er ekki
getið í jarðabókum. Hve nær það
byggðist, er ekki ljóst, en fór í
auðn 1906. Túnkraginn talinn,
að gæfi af sér 10 hesta.
5. Ingibjargarsel er í Auðkúlu-
landi, fram á hálsi. Þess er
ekki getið í jarðabókum. Óljóst
hve nær byggðist. Fór í auðn á
fyrri hluta 19. aldar.
6. Litla-dals-kot er í Litla-dals-
landi á Slétta-dal. Þess er ekki
getið i jarðabókum. Óljóst hve
nær var byggt. Sagnir, að tún-
kraginn gæfi af sér 20 hesta.
Býli þetta er talið að hafa farið
í auðn á árabilinu 1830— 40.
7. Neskot (334).
8. Hagakot í Stóra-dals-landi.
Þess er ekki getið í jarðabókum.
Óljóst hve nær byggðist. Eftir
gamalli sveitabók í Svínavatns-
hreppi virðist, að býli þetta færi
í auðn um 1780. Túnmál nokk-
urt. Sagnir um, að töðufall hafi
verið um 20 hesta.
9. Garðaríki (336).
10. Auðnukot (339).
11. Brandskot (340).
12. Nafnlaus eyðihjáleiga í
Tinda-landi (340).
13. Girðingaleifar í Ása-landi
(343).
14. Girðingaleifar í Hamars-
landi (342).
15. Girðingaleifar í Guðlaugs-
staða-landi (348).
16. Fremri-Þröm (351). Nú
sést þar hlaðinn brunnur niður-
við Blöndu, Þramarbrimnur.
17. Hólareitur í HölJpnfiljstaða-
landi. Jarðabækur nefna ekki
býli þetta. Túnmál lítið. Sagnir
herma, að það færi í auðn á
fyrri hluta 19. aldar.
18. Holtastaðareitur fyrir vestan
Blöndu fór í auðn á seinni hluta
19. aldar.
10. Bólstaðarhliðarhreppur.
1. Ugludalur (352—53). Virð-
ist vera búinn að vera í auðn
um 50—60 ár.
2. Selland (353—54). Virðist
í auðn 50 - 60 ár.
3. —4. Girðingar tvennar í
Bollastaða-landi (355).
5. Þrætugerði (357).
6. Stauragerði (366).
7. Teigakot (367—68).
8. Kóngsgarður (369—70).
Býli þetta virðist vera búið að
vera í auðn 50—60 ár.
9. Stafnskot (371).
10. Þorbjarnarstaðir (371).
11. Ytri-Leifsstaðir (375). John-
sens jarðatal getur ekki Ytri-
Leifsstaða; eru Leifsstaðir þar sem
síðar talin ein jörð.
12. Eiriksstaðakot (378). Virð-