Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 81

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Page 81
81 þrír lágir hraunhellar. Þar suðaustur-af eru Hellishæðir. Norður- af Hellishæðum heita Hraungötubrúnir. Þar á er Hraungötuvarða. Það- an hækkar hraunið austur-eftir alla leið austur að Sigghól; það er stór grjóthóll, snýr frá austri til vesturs, og er gjá í honum, nær því endi- löngum. ÖIl sú hæð, suður að Driftargötu eða Gjáarhólum, er nefnd Háhraun og er grösugasti partur hraunsins, að undanteknum Krók- hólum. Frá Stekkjarhorni inn með fjallinu, að Ferðamannahorni, austur að Hraungötu og suður að Sigghólsgötu, er nefnt Borgarskarðshraun. Frá Ferðamannahorni með öllu fjallinu, norður fyrir Fjallsenda, liggur mjó rönd af brunahrauni (önnur tegund en hitt hraunið), sem heitir Litla- karhraun. Frá austurjaðri þess jafnlangt suður, austur að Stóra-karhrauni og upp að Ródólfsstaðahæð, heitir einu nafni Mosar. Það eru lágir mosa- balar með graslautum á milli. Þar er mikill fjöldi af hellum, stórum og smáum. Suðaustur-af Litla-karhrauni eru tveir hellar kenndir við Hraungötu; austur-af miðju Litla-karhrauni er einn hellir, sem við það er kenndur; hér um bil á miðjum Mosum er hár, stór og fallegur hellir, kenndur við Stóra-karhraun. Austan-við Mosa er Stóra-karhraun af sömu gerð og hitt, nema víða öllu stórgerðara, og miklu stærra um sig, nær raorður á móts við Driftarenda og suður-undir Sigghólsgötu. Norðaustur-af Fjallsenda eru Ródólfsstaðahæðir efri og neðri. Sú neðri er lág, og austur-af henni er hóll mikill, er Rani heitir. Efri hæðin er gamall eldgígur, snýr frá austri til vesturs; vestur-af henni er hæðardrag. Á því er stór og fallegur móbergshellir, sem vert mundi vera að athuga. Á milli hæðanna, sunnan grjótbala, er sagt, að verið hafi bærinn, sem hæðirnar bera nafn af, en óglöggt sáust þar tóftir siðast á nítjándu öld (sbr. þó árb. 1905, bls. 46—47). Austan-við hæðir þessar, upp að Grímsnesvegi, er sléttlendur halli suður að Mosum; heita þar Bringur. í þeim endilöngum er hellraröð, þar sem víða má ganga úr einum í annan, og heitir það Undirgangur. Þar austur-af eru Hamraselshæðir. Ná þær jafn-langt upp og Bringur, og niður að Stóra-karhrauni og austur að Barmahrauni. Austast á hæðum þessum er hellir, og tóftir, er hæðirnar bera nafn af; þar hefir vafalaust verið Sel. Syðst á hæðum þessum er stór brekka við Stóra- karhraun, er Grembás heitir. Miðfellsfjall hefir þrjú aðalnöfn; vestast er Múli, lágur og flatur að ofan; þar næst er Dagmálafjall, stór og mikill ávalur hnúkur; þar eru haldin dagmál frá Mjóanesi; þá kemur Borgarskarð; þar skiftist fjallið því nær í tvent; svo byrjar Norðurfjall. Vestan-í Múla, sem er snarbrattur niður í Þingvallavatn, liggur gata milli Miðfells og Mjóaness. Þar er, næst Miðfelli, kallað Skriða. Á 6

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.