Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 83

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Side 83
Goðkennd örnefni eystra. Það er auðséð á mörgu, að þjóð vor hefir verið mikil sagna- þjóð, eigi sízt af hinum mikla grúa af fornum nöfnum og minning- um, er loða við þögula staðina hér og þar, öld eftir öld. Einkum eru eftirtektarverð þau nöfnin, sem greina frá óþekktum viðburðum eða benda á þá; stundum koma þessar sagnir sem viðbót við fornu sögurnar, stundum sem skýring og leiðréttingar á þeim, en oftast benda þær á alveg óþekkta viðburði. Er undravert, að lærdóms- og fræði-menn skuli eigi hafa sýnt þessu sóma, safnað því öllu í eitt og bjargað því undan hinum hættulega nýungastraum þessara tíma. íslenzka þjóðin má eigi hætta því að virða það, sem hún hefir hlotið virðing fyrir, þ. e. sögurnar. Margar af þessum fornu nafna-minningum benda og minna ótví- rætt á Ása-trúna fornu og heiðna siði. Hefir verið sjaldan og lítið minnst á það, hvernig stendur á hinum mörgu fornhelginöfnum á stöðum, einkum háum stöðum, svo sem tindum og fjöllum. Nú eru óðum að gleymast þessi nöfn. Lífsþarfir, umsvif og kröfur tím ans bola þeim út. Munnmæli segja, að þegar Ása-trúnni var útrýmt og siðir hennar bannaðir opinberlega, þá hafi menn lengi fram eftir, sem líklegt er, blótað og dýrkað goðin á laun, og séu mörg af nöfnunum síðan. Sum eru þó eldri, sem sést af sögunum. Líklega hefir fornmönnum þótt öllu vænna um sína trú en oss um vora. Það má sjá af sögum, að sumir landnámsmenn eystra voru trúmenn miklir. Hér skulu nú talin þau fornhelginöfn, er ég fann á leið minni, sem ég ferðaðist norðan frá Digranesi suður að Heinabergsvötnum. Munu menn sjá af því, að hver sveit á Austurlandi á sin fornhelginöfn geymd. Eink- um eru það þó Goðaborga-nöfnin, sem hver sveit á fyrir sig, og önnur skyld, svo sem Hof og Hoffell o. s. frv. Þessum nöfnum hafa fylgt til skamms kynjasagnir, sem eru glataðar, og aðrar skemmdar orðnar eða breyttar. Þær, sem náðst hefir í, skulu fylgja hér. 6*

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.