Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Side 4
4
aS áin hafi brotið burtu talsvert undirlendi austanmegin nessins, móts
við Rógshóla, þar sem einmitt er líklegast, að bærinn hafi staðið.“
Nú er svo komið, að jafnvel arfsögnin um byggð í Stangarnesi er í
gleymsku fallin, því að Ytrahreppsmenn kannast ekki við að hafa heyrt
hennar getið, og kunna þeir þó fullvel skil á flestum hinum stöðunum.
Verður því ekki annað sagt en að heimildir um byggð á þessum stað
séu næsta rýrar, því að ekki er öðru til að dreifa en arfsögninni um
1700, þeirri er geymzt hefur í jarðabókinni.
2. Rógshólar eru austan við Stangará, móts við Stangarnes; þar
er sæluhús nú. Brynjólfur Jónsson segir: ,,Þar eru smáhólar austan-
vert við ána, móts við nesið. Eru sumir þeirra að blása upp, og hefur
fyrir löngu komið þar í ljós rúst allmikil, sem nú hefur þó misst alla
lögun og er orðin að grjótbreiðu. Þar fann ég steinsnúð, snœldu-
hnokka úr eiri, hrýni og fáeina nagla.“
Árið 1945 skoðaði ég Rógshóla. Þar eru há fokbörð, sem mikið
ber á, annars eru mýrlendir móar allt um kring. Á tveimur stöðum
virtist mér sjá til mannvirkja. Eru það þó ekki annað en grjótdreifar
í moldarflögum, en allt er það smátt grjót, og má vera, að stóru
steinarnir, sem nú eru í veggjum sæluhússins, séu úr þeim húsum,
sem grjótdreifarnar eru vitni um. I einu rofinu hefur Guðni bóndi
Jónsson fundið fötujárn, 50 sm djúpt niðri. Ró úr járni fundum við
í annarri grjótdreifinni 1945.
Forngripirnir sanna til fullnustu, að bær hefur verið í Rógshólum.
Fyrsti gripur, sem þaðan kom til safnsins, var nœla úr bronsi með
gagnskornu verki og eirþynnu undir (Þjms. 3950). Fundin í Rógs-
hólum af Einari bónda Jónssyni á Álfsstöðum haustið 1886. Nælunni
er vel og greinilega lýst af Pálma Pálssyni í skýrslu safnsins, en síðan
hefur hún horfið úr safninu og er ekki komin í leitirnar enn.
Pálmi segir, að hún sé eins og Rygh 665 og Rygh 669, enda sannast
af lýsingu hans, að hún hlýtur að hafa verið af þeirri gerð, ef til vill þó
yngra afbrigði. Á nælum af þessari gerð er úrkynjaður Borró-stíll, og
er gerðin alþekkt í Noregi. Talin er hún frá 10. öld, og jafnvel mun
hún hafa hjarað fram á 11. öld.1) Bendir þetta ótvírætt í þá átt, að
upphaf byggðar í Rógshólum hafi ekki verið seinna en á 11. öld.
Gripir þeir, sem Brynjólfur Jónsson fann í Rógshólum og gaf safn-
inu 1895, eru þessir (Þjms. 4149—52): Hálfkúlumyndaður grá-
steinn með gati, snældusnúður, sem hér um bil helmingurinn hefur
9 Jan Petersen: Vikingetidens smykker, bls. 115, sbr. og mynd 117.