Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Side 7

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Side 7
7 Laugar eru svo merkilegur bær til samanburðar við Þórarinsstaði, að honum verður að lýsa, þótt til þess fari nokkurt rúm. Hirði ég þó ekki að greina frá í smáatriðum, þar sem lýsingum Brynjólfs, Þor- steins og Bruuns ber ekki alls kostar saman, heldur draga fram það, sem telja verður réttast, og halda mig að uppdrætti Bruuns, af því að hann er skýrastur (2. mynd). A Laugum hefur verið langhús og snúið framhlið móti austri. Á henni miðri eða því sem næst voru aðaldyrnar. Inn af þeim er aðal- hús bæjarins, skálinn. Sá, sem að utan kemur, gengur í skálann syðst. A vinstri hönd honum er þá þverveggur með dyrum, sem liggja inn i stofuna, hitt aðalhúsið. Hús þessi eru um 4,5 m breið og til samans um 25 m löng, skálinn þó töluvert lengri en stofan. Um skálagólf þvert var steinaröð, sem fræðimennirnir töldu með miklu hiki að verið hefði þverveggur. En ég þykist sjá, að þetta hefur verið alveg eins og í skálanum í Stöng í Þjórsárdal, steinaröð þessi er undirstaða undir þverþili, sem skipt hefur skálanum í tvennt, eflaust karlaskála og kvennaskála.1) Þá samsvarar það einnig Stangarskálanum, að eld- stæði er í fremri skálanum (framan við steinaröðina), en ekki í þeim innri, enda koma útidyrnar og útidyrasúgurinn í hlut fremri skálans, svo að þetta er eðlileg tilhögun. Ef þurfa þætti að færa enn ríkari sönn- ur á tilveru þverþilisins og skiptingu skálans í Stöng og á Laugum, má benda á stað eldstæðisins í tóftunum. Á hvorugum bænum eru þau í miðri tóft, heldur miklu nær öðrum endanum (dyraendanum), og þetta skýrist vitanlega með því, að skálinn var ekki í einu lagi, heldur skipt í tvennt með þili, og eldstæðið er í öðrum skálanum miðjum. Þar sem skáli var óskiptur, er eldstæðið í miðri tóft, og sést þetta m. a. á Þórarinsstöðum, eins og síðar mun sagt. — Eldstæðið í skálan- um á Laugum var annars lagt flötum hellum og stórt um sig og langt (mál ekki til), en nær fremri enda hellulagningarinnar var gróf eða hola, 30x46 sm að stærð, full af ösku. Þorsteinn kallar þetta feluholu. Eins og þegar er sagt, var þverveggur, þ. e. suðurgafl skálans, rétt vinstra megin við útidyrnar. Á þessum þvervegg eru dyr inn í stofuna, sem stendur beint af enda skálans. Samkvæmt venju er stofan til muna minni en skálinn. Við austurvegg fann Þorsteinn Erlingsson hlóðir og nær dyrum, líklega þá við hinn vegginn, marga kljásteina. Ekki er getið fleiri smáatriða innanstokks, og er raunar undarlegt, að enginn höfundanna skuli hafa séð leifar af seti í skála eða bekk í stofu, en það hlýtur að stafa af hinu illa ástandi rústanna, J) Sbr. Forntida gfirdar i Island, bls. 84.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.