Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Side 8
8
og má þakka fyrir, að borgið varð nokkurri vitneskju um þær á síð-
ustu stundu.
A bakvegg skálans (vesturvegg) eru dyr, sem liggja inn í fjósið.
Það er að húsabaki og stendur hornrétt á hin húsin. Það er um 11 m
að 1. og 4,8 m að br., tvístætt, með 8—9 básum hvorum megin;
básarnir voru yfirleitt um 90 sm að br. Milli þeirra voru báshellur,
60—90 sm á hlið. Fjósdyrnar eru við skálavegginn að sunnanverðu.
Að þeim liggur ranghali (óvíst hve langur), nálega 2 m breiður.
Jafnframt því sem þetta var inngangur kúnna, eins konar forskyggni
við fjósið, sem dró úr útidyrakuldanum, hefur þetta verið notað sem
fjárhús, því að jata var fram með endilöngum vesturveggnum. Hún
var 25 sm að br. og frambrúnin gerð úr hellum, sem reknar voru
á rönd niður í gólfið (sbr. Þórarinsstaði). Jata þessi var alveg óhreyfð,
og segist Þorsteinn Erlingsson hafa séð mjög líka jötu í notkun á Is-
landi.
Norður frá norðurvegg fjóssins, austast, liggur hlaða, 9,6 m að 1.,
en aðeins 3 m að br. Hún liggur eins og aðalhúsin. Milli hennar,
fjóssins og skálans myndast ferhyrnt svæði, sem lokast algjörlega af
þessum húsum að sunnan, austan og vestan, og að nokkru leyti að
norðan af framlengingu norðurgafls skálans. Er ekki alveg ljóst, hvort
enn eitt hús hefur verið norðan við skálann. Ferhyrnda svæðið er
eins konar húsagarður, að nokkru leyti steinlagður. Ef til vill hefur
þetta svæði verið notað sem heygarður eða jafnvel rétt, en gott gat
einnig verið að hafa þetta afdrep fyrir útigangspening. Utihús hafa
annars engin fundizt á Laugum, nema hvað leifar af smáhúsi sáust
rétt norðan við bæinn, en það hefði eins vel getað verið smiðja.
Arfsögnin segir, að kirkja væri á Laugum. Kippkorn norður frá
bæjarrústunum, en innan túngarðsins, er rúst af húsi úr stórum stein-
um, og hefur það snúið A-V, en mjög er rústin ógreinileg. Húsið hef-
ur staðið á klöpp, og líklegra er, að það hafi verið hjallur en kirkja,
því að ómögulegt er að hafa þarna kirkjugarð. Ef byggðin í Hvömm-
um hefur ekki verið meiri en hér er haldið fram, 4—5 bæir, verður
minni ástæða til að ætla, að þeir hafi haft sérstakan kirkjustað.
Túngarður mikill hefur verið um túnið á Laugum, og suður frá
bænum er lítil hústóft áföst við garðinn.
Forngripir hafa fundizt mjög fáir á Laugum. Þegar er getið um
kvarnarsteinsbrotið og kljásteinana, og er ekki öðru við að bæta en
beizlisádrcetti úr bronsi (Þjms. 4158, 3. mynd), sem Þorsteinn Er-
lingsson fann við rannsókn sína. Þessum gripum er bezt lýst á mynd-
inni, og til samanburðar er birt mynd af öðrum álíka ádrætti, sem