Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Page 40

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Page 40
40 fjósdyr, samband fjóss og hlöðu líkt. Vöntun búrs á Laugum virðist mér þó benda eindregið til þess, að uppdrættirnir af bænum séu ófullkomnir. En viss atriði eru örugg, og þau sýna ættarmótið. Enn fremur fæ eg ekki betur séð en að þessir bæir séu algjörlega hlið- stæðir bæjum af Þjórsárdalsgerðinni, sem dr. Roussell hefur gert grein fyrir.1) Eitt séreinkenni hafa þó bæirnir í Hvömmum, sem ekki finnst á neinum bæ í Þjórsárdal, en það er hið sambyggða fjós. Þetta getur þó ekki komið neinum á óvart, því að þetta fyrirbrigði er vel þekkt úr íslendinga sögum, t. d. Gísla sögu Súrssonar. En byggð- in í Hvömmum er líklega einmitt frá tíma sagnaritunarinnar, 13. öld. Aldursákvörðun bæjarins á Þórarinsstöðum er vandkvæðum bund- in, ekki sízt vegna þess, að þar fundust engir forngripir, sem hægt sé að treysta á að þessu leyti. Þórarinsstaða hinna fornu er hvergi getið í sögum, en í Vilkinsmáldaga 1397 er frá því skýrt, að Hóla- kirkja í Hrunamannahreppi eigi afrétt ,,til Þórarinsstaða,“") sem tekur af tvímæli um, að þá er bærinn kominn í eyði. I jarðabók Árna og Páls segja þeir svo um bæina í Hvömmum: „Þessa byggð segja menn eyðilagða vera í plágunni stóru, ekki þeirri síðustu (það er að skilja þeirri, sem gekk 149—), heldur þeirri, sem fyrr hafi verið, og mun það eiga að vera sú 1350, því Vilkinsmáldagi getur ei þessara kirkna, en hann er eldri en sú plágan 1401.“ Á þessu er harla lítið að græða, enda alvanalegt, að eyðing byggða sé sett í samband við svartadauða eða einhverja plágu. Arfsögnin hefur ekki heldur verið örugg um þetta efni, því að í fornleifaskýrslu röskum 100 árum seinna segir presturinn, að bæirnir hafi eyðzt ,,af Heklugosum.“ Ósagt skal látið, hvort þetta styðzt við órofna erfðasögn, en hitt er víst, að öskulagafræðin er þrautalendingin, þegar svars er leitað við spurningunni um aldur bæjarins. Þeim, sem séð hefur hvíta vikur- lagið í Stöng og á Þórarinsstöðum, getur þó ekki blandazt hugur um, að þar er um sama lag að ræða. Um þetta fjallar dr. Sigurður Þór- arinsson í sérstakri grein hér á eftir og skal aðeins til þess vísað, en niðurstaðan er sú, að hvíta vikurlagið í bænum á Þórarinsstöðum sé frá árinu 1300 og muni bærinn þá að líkindum hafa eyðzt. Ekkert fornfræðilegt mælir gegn þessu. Önnur spurning er, hve Iengi þessi bær hafi haldizt í byggð. Því er fljótsvarað, það hlýtur að hafa verið stutt. I fyrsta lagi eru þar engar sýnilegar viðbyggingar eða endurbyggingar, og hvergi vottar fyrir J) Forntida gárdar, bls. 203 o. áfr. 2) ísl. fbrs. IV, bls. 45.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.