Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Síða 76
76
/íaðafylki allt norður til Naumdœlaíylkis og HáleygjaíyWás, 20 nöfn
alls. Fylkjaskipunin mun vera frá dögum Haralds hárfagra — það
er landnámsöld Islands — eða svolitlu yngri. Hún virðist þó í Þrænda-
lögum hafa verið mun eldri, svo að myndun fylkjanafna hefur getað
átt gamlar fyrirmyndir. Hins vegar eru norsku skipreiðurnar, sem eru
sennilega yngri en hin fylkin, en þó tæplega mikið, næstum allar
kenndar beint við bæi eða sveitir, svo sem Hísings skipreiða, Gröts-
bakka skipreiða og Stangalands skipreiða. í Svíþjóð er málið flókið.
Þó virðist það bæði þar og í Danmörku vera aðeins mjög gömul nöfn
á sveitum og héruðum, sem eru mynduð eins og Gnúpverjahreppur.
bað er sennilegt, að menn hafi á hinum Norðurlöndunum þegar fyrir
iok víkingaaldar verið hættir að mynda þess háttar nöfn. Samt geta
þau verið nokkru yngri á Islandi.
Þar sem öll líkindi eru til þess, að Eystri- og Ytri-Hreppur séu
jafngamlir, mun sumum þykja einkennilegt, að annar þeirra er kennd-
ur við -verja (Gnúpverja), en hinn við -menn (Hrunamenn). Nöfn
eins og Hrunamenn og Holtamenn mun hafa verið hægt að mynda,
hvenær sem var. Oðru máli gengir um Gnúpverja- og Áuer/anöfnin.
Germanar hafa myndað íbúanöfn með viðskeytinu -verjar bæði í
Þýzkalandi, Englandi og á Norðurlöndum. Þau sýnast öll hafa átt við
stærri sveitir. I Noregi má nefna Vikverja, Hvínverja og Gaulverja.
Hér á íslandi voru þessi nöfn sjaldgæf, og flest þeirra eru dregin af
nöfnum einstakra bæja. Kenndir við sveitir eru aðeins Kjósverjar,
Strandverjar og Botnverjar, er allir bjuggu við Hvalfjörð, og svo Hlíð-
verjar. Þannig kallar Njáls saga Fljótshlíðinga. Strandverjar og Botn-
verjar eru nefndir í Harðar sögu. Það eru þeir, sem bjuggu utarlega á
Hvalfjarðarströnd, og hinir, sem bjuggu innarlega í firðinum. Sama
saga nefnir auk þeirra Hólmverja, ránsmennina í Geirshólmi. Öll önn-
ur verja-nöfn á Islandi eru kennd við bæi. Þau voru þó notuð miklu
frekar sem nöfn á ættum en sem venjuleg íbúanöfn. Oft er sagt, að
frá einhverjum manni séu komnir þessir og þessir -verjar. Þannig
nefnir Landnámabók Barðverja (í Fljótum), Oddaverja og Vallverja
(Stóru-Vellir á Landi), Þórðarbók þar að auki Stöðverja, sem eldri
q(erðirnar kalla Stöðfirðinga, Njáls saga nefnir þannig einhverja
Hvammverja, Oddaverja og Skógverja (undir Eyjafjöllum), Laxdæla
saga sömu Skógverja. A annan hátt eru nefndir Dalverjar undir
Eyjafjöllum ( Njáls saga nefnir búð þeirra á Þingvöllum og Sturlunga
saga goðorð þeirra), Hvammverjar i Dölum (Laxdæla og Sturlunga
saga), Hofverjar bæði í Vatnsdal (Vatnsdæla saga) og í Vopna-
firði (Vopnfirðinga saga og Þorsteins saga hvíta), Skarðverjar á