Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1943, Page 97
97
hellinn kemur, og er ekki farandi ljóslaust. Aðalhellirinn er hvelfing,
bogmynduð, nokkru meira en manngeng í miðju, en gólfið slétt hellu-
gólf. Þeir, sem námu helli þennan, svo að sögur fari af, nefndu hann
eftir félagi þeirra og kölluðu Hvatshelii. Nafnið máluðu þeir svo með
gullnum stöfum á innanverða hvelfingu eða gólf (ég man ekki hvort
heldur). Eftir að hellir þessi fannst, varð margt manna til að skoða
hann. Nú eru þær ferðir víst að mestu niður lagðar, en ég get hans
hér, ef einhvern fýsti að vitja hans og máske halda nafnfestinni við.
Til leiðbeiningar skal þess getið, að til skamms tíma voru þrjár litlar
vörður á Kersbrún norðaustan við op hans. Skal nú haldið áfram
ferðinni. Þegar upp yfir hraunbeltið kemur, sem umgetnir hellar eru
í, er aftur komið á moldargötur, og er þá Smyrlabúðarhraun til
vinstri, en Klifsholtin, nokkrir smáásar, sem hraunið hefur runnið
kringum, á hægri hönd. Fyrst er Sléttahlíð, þá Smalaskáli ofar og
austar. Þegar brunann þrýtur, til vinstri, er hæð eða ás með aflíð-
andi halla móti vestri; að austan eru brattar skriður, en hamrabelti
með smápöllum hið efra. Þetta er Smyrlabúð. Nokkuð hefur verið
um þetta nafn deilt, eða réttara sagt nafn á þessari hæð, og hafa
þar ýmsir haldið fram nafninu Smillibúð. Ut úr því nafni hefi ég aldrei
neitt getað fundið og hef eindregið haldið á lofti nafninu Smyrlabúð.
Ekki skal ég fullyrða, hvað liggur þessu nafni til grundvallar, en geta
vil ég í þessu sambandi, að þar hef ég fundið í einu, fyrir mörgum ár-
um, þó nokkur smyrilshreiður á klettasyllum, og mun það ekki víða,
að smyrlar verpi svo í nábýli, sem þar var þá. Ekki er ólíklegt, að
einhver hafi endur fyrir löngu orðið var óvenju margra smyrla um
þessar slóðir og gefið svo hæð þessari nafn þar eftir.
Við suðurenda Smyrlabúðar þrýtur Klifsholt og tekur við allgreið-
fært klappahraun, þar til í Helgadal kemur, en það er smádalur með
uppsprettuvatni, enda skammt frá upptökum Kaldár. 1 Helgadal er
talið, að byggð hafi verið fyrrum.
Þegar upp úr Helgadal kemur, taka við sléttar melgötur að Vala-
hnjúkum, sem eru tindóttir móbergshnjúkar norður af Helgafelli.
I Valahnjúkum norðaustanverðum, rétt við götuna, er lítill hellir inn
í móbergið, Músarhellir. Gátu legið þar inni nokkrir menn, enda var
hann notaður fram um síðustu aldamót sem náttstaður gangna-
manna á haustin. Gangnamenn þessir voru norðurleitarmenn til Gjá-
arréttar, sem nú er fyrir löngu niður lögð og flutt niður undir Hafnar-
fjörð. Gjáarrétt var í norðvesturenda Búrfellsgjár, en hún er mikill
og víða fagur hraunfarvegur frá Búrfelli, sem er stór eldgígur. Mun
Búrfell vera stærsti og næsti gígur hér í nágrenni og er vel þess
7