Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Page 1
þjóðhátiðar sálmur,
Lag: 1 dag citt Mcssab barnib er.
1. Guð leit af hirnna hæð og sá
í höfum norðurs köldum
úr ægi risna eyju þá,
sem æltland vort vér höldum;
hann mæili þá: „hér eyland er,
sem autt ei láta þóknast mér;
þótt gnæfi fjöll með fönnum,
þar býðst svo margföld blessun mín,
og blílt þar sól í dölum skín;
eg býð: það byggist mönnum‘c.
2. Og herrann sendi hrausta þjóð,
er hólmann auða byggði;
en það, í myrkrum að hún óð,
hans anda góðan hryggði;
hann vildi’, að sannleiks sólin blíð
til sáluhjálpar skini lýð
um fátækt frónið ísa;
í landi boða lét hann því
um lífsveg réltan fræði ný,
og krossinn Krists hér rísa.
3. Ó, lof sé Guði! líknin haus
ei landi voru gleymdi;
til heilla beztu búum lands
hans blessun niður streymdi;
og þótt á dyndu þrauta hret,
1