Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Síða 4
4
Páll postuli.
Af öllum þeim, er unnið liafa að því að úlbreiða Jesú
lírisls heilaga lærdóm, er enginn sá, er jafnmikið kveði
að sem poslulanum Páji; hann grundvallaði fyrstur
manna Krists kirkju meðal lieiðingjanna, og kom föslu
skipulagi á söfnuði þá, er hann stofnaði víðsvegar með-
al hinna merkus'tu þjóða fornaldarinnar; brjef þau, sem
til eru eptir hann í Nýja Testamentinu, hafa og ávalt
haft og munu liafa hin mestu áhrif á kristilega kirkju;
auk þess er hið andlega líf Páls postula einhver hinn
merkasli vottur um almættiskrapt Guðs náðar til að
hreinsa og helga hugarfar syndugs manns; því miður
vitum ver eigi tneð vissu annað um æfi hans, en það
sem sagl er í Postulannagjörningabók og það, sem ráða
má af ýmsum greinum í bréfum hans.
Postulinn Páll, eða Sál, eins og hann var nefndur
framan af, var Gyðíngur að ætt; hann var fæddur og
uppalinn í borg þeirri, er Tarsus hét; það var grísk
verzlunarborg, sunnan til í Litlu-Asíu i landi því, er
Silisía nefndisl; faðir hans var af ættkvísl Benjamíns og
hafði öðlast rómverzkan borgarrétt. í Silisíu var um
þær mundir tjaldagjörð mikil og lærði Páll þá iðn; samt
sem áður var hann á unga aldri setlur lil menta;
optar en einusinni farast honum svo orð, að sjá má,
að haun hefur haft kynni af grískum rithöfundum: en eink-
um mun hann þó hafa stundað vísindi þau, er kend
voru í skólum Gyðinga; var honum því á æskuárum