Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Side 5
5
sfnum komið til Jcrúsalem og nam liann þarfræði þá, er
hinn vilri Gamalíel kendi lærisveinum sínum.
I’á er Pall dvald'i í Jerúsalem var það, að postul-
arnir tóku til að boða krislna trú; fylltist liann þá vand-
lætingu fyrir trú feðra sinna, er honum þótli hin nýja
kenning vilja brjóta niður, og æsli til ofsóknar gegn þeim,
er tekið höfðu kristna trú; var hann viðsladdnr við líflát
Stefáns píslarvolts og lét vel yfir því; ofsótti hann
kristna menn í Jerúsalem svo ákaft, að hann gekk inn
í hús manna og dró þaðan menn og konur og seldi í
varðhald; stóð þeim hinn mesti geigur af lionum; leit-
uðu margir kristnir menn þá burt úr Jerúsalem tíl ann-
ara staða, er þeir ga:tu verið óhultir á; Páll fór þá til
æðsta prestsins og fékk hjá honum bref til Damaskns-
borgar á Sýrlandi og heimild til að taka höndum og
ílytja til Jerúsalem hvern, er hann kynni að íinna þar,
sem tekið liefði hina nýju trú. Lagði Páll svo á stað,
en er hann nálgaðist Damaskusborg leiptraði skyndilega
um hann ljós af himni og hann féll til jarðar; heyrði
liann þá rödd segja við sig: Sál! Sál! hví ofsækir þú
mig? cn hann sagði: herra, hver ert þú? röddin svaraði
þá: Eg er Jesús, sem þú ofsækir; erfilt verður þör, að
spyrna á móti broddunum; þvínæst bauð Jesús honum
að fara til Damaskus og þar mundi honum verða sagt,
hvað hann ætti að gjöra; en er Páll stóð upp sá hann
engan. í Damaskus var trúaður maður einn að nafni
Ananías; honum sagði Droltinn að fara og leggja hend-
ur sínar yfir Pál, þareð hann væ.ri úlvalið verkfæri sitt,
til að bera nafn sitt fram fyrir hciönar þjóðir; Ananias
gjörði sem Drollinn bauð; fékk Páll þá aptur sjón sína
og fylllist heilögnm anda, og var hann svo skírður.
LTpp frá þessu var Páll sem annar maður; hin mikla