Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Qupperneq 37
37
Kristniboð Jóns Vilhjáhns á Suðurhafseyunuin.
Jón Vilhjálmur (John Williams) er borinn og barn-
fæddur 1796 í litlu þorpi nálægt Lundúnaborg og fékk
hann gott og kristilegt uppeldi hjá foreldrum sínum, en
þó einkum hjá móður sinni, sem var guðrækin kona og
sem á hverju kveldi baðst fyrir með börnum sínum.
Hún gróðursetti hjá honum á únga aldri þá kristilegu
trú, sem seinna bar svo fagra ávexti. Þegar hann var
14 vetra kom faðir hans honum fyrir til kenslu hjá
járnsmiði nokkrum, er hét Tonkin og var móður hans
mikil gleði að því, að þessi hjón voru góð og guð-
hrædd. Vilhjálmur átti að halda reikníngana á skrif-
stofunni; en hann hafði mest gaman af að vera í smiðj-
nnni og horfa á smíðarnar og að æfa sig í að smíða,
þegar enginn var þar. Hann varð fljótt svo fullnuma í
járnsmíði, að hann tók öllum samlærisveinum sínum
fram og kom það honum seinna að góðu haldi, þegar
hann var orðinn kristniboðari.
En meðan á þessu stóð, slokknaði smásaman hjá
honum trúarlíf það, sem móðir hans hafði vakið, svo
hann gleymdi Guði og matti lítils áminníngar húsbænda
sinna og móður sinnar, sem nú daglega beiddi Guð
grátandi fyrir honum. Hann lagði nú lag sitt saman
við gjálífa kompána og féll allt af dýpra og dýpra, þang-
að til Drottinn, sem ætlaði honum að vinna stórvirki,
opnaði augu hans og frelsaði hann frá glötuninni. Ein-
hvern sunnudag 1814 haföi hann mælt sér mót með