Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Síða 65
65
bverfula til Guðs, þá getur hanu gripið hina ósýnilegu
forsjónarhönd, og haldið sér fast við hana, svo hann
villist ekki út í efasemdanna myrknr.
Að vísu sjáum vér allt eins og í þoku og ráðgátu
og getum ekki skilið til fulls lcyndarráð hins eilífa né
stjórn hans á heiminum, af því að vér erum skamm-
sýnar og endanlegar verur; en þó getum vér einalt
eins og þreifað á handleiðslu hans, hvort heldur vér
virðum fyrir oss sögu heilla þjóða eða vorn eigin lífs-
feril. Er ekki Guðs forsjón áþreifanleg í sögu Gyðinga-
þjóðarinnar fyrr og síðar? Er hún ekki líka áþreifan-
leg i sögu kristilegrar kirkju, sem af litlum upptökum
heflr um hinar liðnu aldir útbreiðst um heiminn, og er
ætlað að útbreiðast, ekki með sverðseggjum, heldur
með guðsorði, sem er beittara hverju tvíeggjuðu sverði?
Frá því, er þrjár þúsundir Gyðinga skipuðust við ræðu
Péturs postula og létu skýrast, frá því er Páll postuli
stofnaði söfnuði af kristnuðum heiðingjum ( 2 heims-
álfum, hefir náðarboðskapurinn runnið silt sigursæla
skeið eins og sólin frá austri til veslurs; og eins og
sólin sendir meiri liita og meira lífs afl niður á jörðina
eptir því sem hún stígur hærra á lopt, þannig hlaut
einnig ljós kristilegrar trúar alltaf meir og meir að
gagntaka þjóðirnar með hinu mentandi og betrandi lífs-
afli sínu, bæta siðferðið, af nema mannblót, þrældóm
og mansal, útvega hinum guðlegu sannindum gildi í
veraldlegum lögum þjóðanna, hjálpa til þess, að íþróttir
og vísindi blómgnðust og margvislegar mannelsku stofn-
anir kæmust á fót, til þess að líkna nauðstöddum og
sjúkum, og veita munaðarlausum börnum kristilegt upp-
eldi. Öllu þessu heflr kristindómurinn komið til leiðar
og er það ekki bersýnilegur vottur um Guðs föðurlegu