Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Page 76
76
í þessu þorpi dvaldi presturinn nokkra stund. Á-
standið á Frakklandi fór nú að skána og þjóðstjórnin,
sem loksins var liúin að svala drápgirni sinni, leyfði
Frökkum aptur að dýrka Guð feðra sinna. Sóknar-
menn Landaus, sem höfðu frétt, að lionum hefði verið
bjargað af fiskimanni frá Loire fljótinu, komu nú til
hans hópum saman og beiddu hann að vitja aptur
safnaðar síns, sem hann og gjörði. En þegar hann
fór af stað, reisti hann upp krossmark hjá hreisi því,
sem hann hafði dvalið í, féll þar á kné ásamt öllum
þeim, er honum fylgdu, og bað Guð heitt og innilega
að blessa þau hin guðræknu hjón og börn þeirra, sem
höfðu frelsað hann, og svo opt stofnað lífi sínu í hættu
til að líkna og liðsinna bágstöddum.