Ný kristileg smárit - 01.01.1874, Page 81
81
framfara 9. sunnudag eplir Trínitatis, sem er 2. dagur
næstkomandi ágústmánaðar, í öllum aðalkirkjum lands-
ins, en á útkirkjum næsta sunnudag, eða næstu sunnu-
daga á eplir, þar sem því ekki verður viðkomið að
messa á íleiri kirkjum en einni áminstan dag. Enn-
fremur hefir hann fyrir ræðuteksta ákveðið Dav. sálm.
90, 1.—4. og 12.—17. v. og lagt svo fyrir, að prestar
gjöri sér allt far um, að gjöra guðsþjónustugjörð þessa
svo hátíðlega, sem unt er, og í því skyni láti hringja
eina klukkuslund á hverri kirkju kvöldinu fyrir.
Áminstur ræðuteksti hljóðar þannig:
■iDroltinn, þú varst vort athvarf frá kyni til kyns.
Áður en fjöllin fæddust og þú tilbjóst jörðina og heim-
inn, já, frá eilífð til eilífðar ertu Guð. ^ú gjörir mann-
inn að dupti og segir: Ifomið aptur, þér mannanna
börnl því þúsund ár eru fyrir þínum augum sem dag-
urinn ( gær, þá hann er liðiun, og eins og næturvaka.
Kenn oss svo að telja vora daga, að vér verðum for-
sjálir. Snú þér til vor Drottinn. Aumkastu yflr þína
þjóna. Metta oss skjótt með þinni miskun, svo mun-
um vér fagna og gleðja oss alla daga vors lífs. Gleð
oss nú eins marga daga og þú hefir oss beygt, eins
mörg ár og vér höfum séð ógæfuna. Lát þína þjóna
sjá þitt verk, og þeirra börn þína dýrð. Drottins, vors
Guðs, góðgirni veri yfir oss og staðfesti verk vorra
handa, já, lát þér þóknast að staðfesta verkin vorra
handa.o
Á synodus 1 8 7 3 var meðal annars rætt um
uppástungu frá fundi þeim, er haldinn var að þingvöll-
um 26.—30. Júní s. á., um að stofna nú í ár íslenzkt