Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1882, Side 56

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1882, Side 56
192 eigi fullnægjandi. f>að virðist svo sem auðsjeð, að eggmóts eigi saman við ásynjur, og eggmóts ásynjur s]eu=valkyrjur; en að eggmóts geti með engu móti verið fyrir „at eggmóti“; það yrði hjer málleysa. Með því að Glúmur hefur eigi hugsað sjer, að konur þær, sem hann sá í draumnum, hafi verið ásynjur, heldur valkyijur, verður að taka eggmóts saman við ásynjur, og með því er fallin hin getgátan, að taka saman eggmótsför; enda dreymdi Glúm eigi, að konumar færu til neins bardaga. Að „vagna-vinir“ sjeu f>ór og Óðinn, get jeg held- ur eigi fallizt á; enda verður eigi sjeð, yfir hverju þeir hefðu átt að gleðjast, þótt konurnar jysu blóði yfir hjeraðið. Jeg get þannig eigi látið mjer nægja neina af þessum skýringum. í útgáfunni 1830 (íslendingasögur 2. bindi Kmh.), bls. 376, er vísuhelmingurinn þannig prentaður í meg- inmálinu: J>ar er ósynjur jósu eggmóts of fjör seggja, vinir fagna því vagna, vígmóðar fram blóði. Hjer er þá orðið fjör tekið upp í stað för í hinum eldri útgáfum, og þessu orði er haldið í útgáfunni 1880, eins og sjá má á vísunni hjer að framan, og eins vegna fyrir vagna síðast i 7. vfsuorðinu. Með útgáf- unni 1830 fylgja engar skýringar. Jeg ætla mjer þvf að halda mjer við vfsuna, eins og hún er prentuð í útgáfunni 1880, og ætla að hún verði þar þó rjettust. En hversu má fá rjetta hugsun út úr visunni, eins og hún er þar? J>ær skýringar, sem jeg hef getað fundið á vísu þessari f orðabók Sveinbjarnar Egilssonar, eru þær, sem jeg nú skal greina: 1. Eggmót (Lex. poet. bls. 121) tekur hann, einsog

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.