Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Blaðsíða 60

Eimreiðin - 01.01.1898, Blaðsíða 60
6o svipur, kom nær, skimaðist um, kastaði nokkrunr kveðjuorðum á ykkur, gekk fram hjá og hvarf. En þessi eini maður, göngulag hans, yfirbragð, augu og rödd höfðu svo djúp áhrif í einverunni, að hvenær sem endurminningin um auðn fjallssljettunnar hvarfl- aði þjer í hug, kom maðurinn með, kom aptur gangandi, leit á þig, talaði og hvarf. Einkennilegur svali frá staðnum fylgdi mynd- inni. Hugsaðu þjer svo skáld, sem leiðir þenna framhjágang- andi mann rakleitt inn til þín í stofuna þína í borginni! Skáld, sent setur þjer hann svo glögglega fvrir hugskotssjónir, að þú kennir aptur auðnarinnar uppi á hásljettunni, sjer ljósgráðið á snæ- fjöllunum, kennir að nýju svalans, en finnur líka hina þýðu ang- an lyngsins, minnist tæra, svala vatnsins í læknum og heyrir rödd sjálfs þín og hans, svo sem væru það ekki þið, sem töluðu, held- ur einhverjir að baki ykkar. Sona skáld er Hans Kinck. Til þess að ná slíku blekkingarvaldi, hefur hann slegið eign sinni á landspildu þá, sem liggur eins og höggkoddi milli æfintýralands- ins og frásögulandsins (Frakkar kalla það tampon, Englendingar buffer-state), og hefur sá landgeiri áður legið milli hluta, en nú er það ekki lengur svo, er hann hefur lagt hann undir sig, því það- an gjörir hann strandhögg til beggja handa yfir hvorutveggju landa- rnærin. Og nokkuð líku er að gegna með málið; á því fær bæði landsmálið og bændamálið að kenna — og þar við bætist að orða- lag og ritháttur er nokkurs konar blendingur, sem hann hefur sjálfur tilbúið, og á hljómblær hans að líkja eptir hinum upphaf- legu áhrifum. Þetta hið síðasttalda er eflaust sprottið af mis- skilningi; það er gönuhlaup imyndunaraflsins. Því, sem er eitt- hvað einkennilegt, verður að velta fyrir sjer, þangað til það lagar sig eptir þeim búningi, er allir þeir geta skilið, sem skynbragð bera á listir. Fyr getur það ekki orðið listaverk. Blómmóðuna á stöðlinum og kvöldþokuna frá mýrinni í grend- inni, getur Hans Kinck ofið æfintýrlega saman í ástsjúkum huga selstúlkunnar, sem fær heimsókn á næturþeli. Hann getur látið sömu stúlkuna sitja í kirkjunni niðri í dalnum daginn eptir, en blómin á stöðlinum og kvöldþokan fylla líka kirkjuna og gjöra slíkan usla, að vanmáttur prestsræðunnar gegn tölu náttúrunnar vekur munaðþýðan kvíða. Að lokum virðist hún ekki hafa meiri meðvitund um sjálfa sig, en um lyngið, sem fyllir loptið af angan, og hún gengur fram hjá á leiðinni upp eptir aptur. Og svo að jeg segi það greinilegar: Bændalífsmyndir hans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.