Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Blaðsíða 41

Eimreiðin - 01.01.1898, Blaðsíða 41
4i og gangi þá á afvikinn stað. Þau vilja ekki afla öðrum óþæginda með þjáningum sínum. En þarna uppi í sveitinni höfum vjer siðar fundið hann, og reist honum fagran minnisvarða. A þeim varða stendur mynd hans, og er annað augað stærra en hitt. Hvað jeg man vel eptir honum með annað augað tindrandi og vott af eldfjöri, en hitt dregið inn eins og hikandi, með hæðni og hlátur á hraðbergi. Við kvæði eptir Vinje hefur Edvard Grieg samið sum sinna fegurstu laga. Lofsöngur Vinje til »móðurinnar«, fagnaðaróp hans, er hann leit háfjöllin aptur og kveðja hans til vorsins, hafa lokkað fram tóna, sem eru jafnódauðlegir og kvæð- in sjálf. Þannig munum vjer muna hann, sveipaðan dýrðarljóma sönglistarinnar. Ivar Aasen heitir fjársjóðagrafarinn, sem dró fram úr fylgsn- unum og fágaði upp aptur gangsilfur gamla málsins, er lá í hirðu- leysi á við og dreif um bóndabýlin. Til þessa hefur hinn hæg- láti, trygglyndi maður varið lífi sínu. Jafnframt hefur hann raulað fyrir munni sjer kvæði og kvæði, ættjarðarkvæði, náttúruóð, heil- ræði, með svo djúpri tilfinningu, svo látlaus að efni og búningi, að teygja mætti heilar bókmenntir á glapstigu; þá glapstigu að klæða tilfinningar sinar í búning, er áratug tæki að sníða, svo að listaverk þjóðarinnar í heild sinni yrðu örfáir undragripir til að setja á eitthvert heimssafnið. Hugsið ykkur hvernig það væri, ef samtíðin ætti ekki fleiri myndir af hinu fjölbreytta mannlifi, og hefði því ekki annan styrk af bókmenntum og listum en þann, sem þeir fáu rithöfundar veita, er lifa hjá komandi kynslóðum? Nú, þessi tvö skáld voru það þá, sem komu fram og ortu á nýnorska málinu; þannig auðguðu þeir málið enn að nokkrum ódauðlegum kvæðum. En síðan? Ekki eitt einasta, að því er jeg fæ sjeð. Það hefur komið fram sitthvað snoturt, með næmri tilfinn- ingu og fögru formi; en lítilfjörlegt er það. Mjer liggur við að segja, að fram á þennan dag sjeu þessir tveir einu frumlegu skáld- in á »landsmálinu«, þ. e. einu sjálfstæðu skáldin. En því auðugri eru hinar nýju bókmenntir á þessu máli af snotrum eptirlikingum; að fást við nýtt mál, æfir ósjálfrátt fegurð- artilfinninguna; einn þeirra skálda er jafnvel snillingur. En svo er upptalið, — aptur á móti hefur hinn málsþátturinn samtímis getið af sjer hvert skáldið á fætur öðru, og rit þeirra hafa fjallað um allt milli himins og jarðar. Meira að segja, bænda-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.