Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1898, Blaðsíða 78

Eimreiðin - 01.01.1898, Blaðsíða 78
78 hve miklu liði J. Ó. hafi á þroskaárum sínum orðið ættjörð sinni, en um ást hans á henni og umönnun fyrir framtíð hennar getur enginn með rjettu efazt. Ættjarð- arástin hefur á æskuskeiðinu verið svo rík í huga hans, að umhugsunin um hana brýzt alstaðar fram, jafnvel þó hann sje að hugsa um allt annað, hvort sem hann er að lýsa haustinu í Rvík (»Haustvísur«), kvöldroðanum uppi á Kalda- dal (»Loptið rauðri litar glóð« o. s. frv.) eða hann er að yrkja þorrablótsvísur í Khöfh (»því Fjandinn eptir Islands stjórnarlögum — er dbyrgöarlaus, þó hann gefi ráðt). Þetta er engin uppgerð, og vjer getum því vel tekið undir með höf. þar sem hann óskar Islandi að eignast »marga sonu, er elska þig sem eg, — en eru meiri skapstillingarmenn«. Hjá J. Ó. kemur fram mikið lífsfjör og hann er síungur í anda. Hann »æðrast ekki, þótt inn komi sjór, þó að endur og sinn gefi á bátinn«. Hann getur að visu fengið þunglyndisköst og andvarpað, en ljettlyndið og kjarkurinn fær skjótt yfirhönd. Hann stendur upp og hristir sig og segir: »Lítt mun ráð að lækka sig — né láta undan síga; — heimurinn mun þá hrækja á mig, — á hálsinn á mjer stíga«. Hin nýja viðbót við kvæðin er yfirleitt síður en hin eldri kvæði, og sum kvæði eru þar, sem alls ekki hefði átt að prenta, að minnsta kosti að svo stöddu (t. d. »Skálkaskjól« og »Ofurlítil uppboðs-ríma«). Einna bezt eru kvæðin »Augna- bliks-vopnahlje* og »Ritstjóra-rúnir«, enda eru þau auðsjáanlega kveðin af meiri tilfinning en önnur. SIGURÐUR J. JÓHANNESSON: LTÓÐMÆLI. Winnipeg 1897. (164 bls„ með mynd höfundarins). Kvæði þessi eru eptir ómenntaðan (eða rjettara sagt dskdlagenginn) alþýðumann, eitt af alþýðuskáldum vorum, eða öllu heldur hinn- ar íslenzku nýlendu í Vesturheimi. En þótt höf. hafi nú um langan aldur dval- ið fyrir vestan haf, eru kvæðin jafníslenzk í anda fyrir því og málið á þeim hreint og látlaust. Það er meira að segja furða, hvað það er hreint. Engin bögumæli og engin enskusletta, nerna ef telja skyldi vísuorðið: sfólkið hafði góðan timann« (^bls. 80), sem varla mun skiljast á íslandi (to have a good time = skemmta sjer vel). En þetta vísuorð er í gamankvæði og fer því ekki illa á því. Kveðandin er yfileitt góð og röng áherzla eða aðrir þess konar rímgallar mjög óvíða. Einstaka sinnum bregður fyrir rangri beygingu orða (t. d. þengil f. þengli (bls. 27), meinvœttur f. meinvættir (bls. 67), hilmir f. hilmi (bls. 122) o. s. frv.), en slíkt er þó undantekning, og getur jafnvel stundum verið prentvilla, þar sem það kemur fyrir. Mörg af kvæðunum eru tækifæriskvæði og hafa fremur lítið og sum ekkert skáldlegt gildi, en þau eru lipur og yfirleitt laus við smekkleysur. Hins vegar eru þó í safninu líka reglulega góð og falleg kvæði, og viljum til þess nefna fyrst og ífemst »Til tjallkonunnar«, »Miðnætursólin« og »Draumur«. Þá eru og )>Skipskaðinn á Skagaströnd«, »Vorvísur«, »Sannleikur og lygi«, og »Minni Þórs« góð kvæði og svo mætti fleiri telja. Aptur þykir oss kvæði þau, er ort eru út af efni i fornsögum vorum, hafa tekizt miður vel, að undantekinni hinni síðustu vísu í »Fall Þórólfs Kveldúlfs- sonar«, og tveim hinum síðustu i »Höll Hrólfs kraka«, sem eru skáldlegar. Mörg af kvæðunum lýsa einlægri ættjarðarást og áhuga á ífamförum íslands. Ekki virðist höf. heldur vera á þeim skoðun, að ekki megi lifa eins góðu lífi á íslandi eins og í Ameríku, því hann tekur það skýrt fram (bls. 9), að hann hafi »alla æfi eigi sjeð unaðslegri búmannsreit« en sumstaðar á íslandi og kennir það »öfugstreymi örlaganna«, að hann hafi flutt vestur um haf. — Hinn ytri ffá- gangur á kvæðunum er góður, góður pappír og prent og mynd höfi, sem þeim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.