Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 11
9i
er og salur, kallaður Bæjarþingstofa, og ætti enginn ferðamaður
að koma svo á Seyðisfj. að sjá hana ekki. Barnaskólinn skyggir
alveg á »Auroru«, sem enginn kallar Auroru heldur »Gamla
vertshúsið«. Bað bygði fyrst Guðmundur frá Hesteyri í Mjóa-
firði 1860, en af honum keypti Sigmundur Mattíasson; hann fór
til Ameríku og seldi þá Finnboga Sigmundssyni, en eftir dauða
hans var þar Kr. Hallgrímsson, og höfðu þeir þar allir veitingar
og gistingu. Svo keypti það Kr. Jónsson frá Nóatúni og veitir
þar óáfengi.1 Bar rétt sunnar og líka neðan götu við ströndina
er Gamla pósthúsið. Pað bygði Rasmussen gamli, danskur,
og varð hér fyrstur póststjóri og var það í 25 ár. Húsið erfði
svo Rassmussen kaupm. eftir kjörforeldra sína. Hjá þessu húsi
er lítill garður, og gróðursett í smátrje, ribs, reynir o. fl. Pað er
eins dæmi hér. Aftur á móti hefir t. d. Konráð kaupm. í Mjóa-
firði fengið góðan vísi til trjágarðs. Skamt norður frá húsinu er
bryggja Rasmussens, stutt en traust.
Bar gengur gatan vestur úr fyrir sunnan Sýslumannshúsið.
Par sunnan götu við lónið er húsaþyrping. Bar eru fyrst útihús,
en svo Gíslahús Jónssonar gullsmiðs. Bað stóð áður úti hjá
Norskubúð. Gísli hefir bygt við það handa úraverkstæði Friðriks
sonar hans. Gísli er hálfbróðir síra Jóns Bjarnasonar í Winnipeg
og er mesti snillingur til allra smíða og iðjumaður, en nú mjög
lúinn og bagar þó sjónin mest, því annað augað er frá Birni
augnalækni og hitt óhægt líka. Par við lónið er og Smiðjan.
Hana á Jens gamli, myndar-karl. Hann járnar hesta og járnar
vel. En austustu þökin stuttu, sem ber við höfnina, eru á hús-
um Jörgensens bakara og standa á sjávarbakkanum. Par stóð
áður bærinn Oddi og enn er þar oft kallað í Odda. Húsið reisti
fyrst Nikulás Jónsson, orðlagður hagleiksmaður, bróðir Gísla, og
bygði sumpart úr torfi, það bygði upp Hansen konsúll og hatði
þar brauðgerð, sódavatnsgerð og súkkulaðis um tíma. Af hon-
um keypti Jörgensen bakari og býr þar, en bakar í litlu húsi
vestar á Öldunni.
Bar suður frá á tanganum, milli lónsins og hafnarinnar, eru
næst tvö geymsluhús lítil en þá kemur Baldurshagi gamla
lmslands. I’að hús bygði fyrst Jónas Stephensen, eftir að hans
hús skemdist í vatnsflóðinu 1882; síðar keypti Imsland húsið og
1 Nú, 1903. kvað þar vera bæli Austra og Skafta.