Eimreiðin - 01.05.1903, Page 16
g6
Pá höldum við út á Búðareyri. Par rennur ofan lækur utan-
vert við víkina. Pað er Búðará. Inst grámatar þar í lítið hús.
Pað bygði Garðar og er kallað járnhúsið. Því grindin er úr járni
og dýrast hús á Islandi eftir stærð. Á því ætlaði Hermann hinn
alræmdi að kenna okkur félögum sínum að byggja hús hér á
landi. En hvítu þilin þar framar í brekkunni nær sjónum er
Fremstibærinn, torfbær með ágætum túnbletti umhverfis, sem
allir vilja eiga. Sá bær hefir staðið nokkuð lengi. Bak við hann
grillir í gamla hús Sigurðar múrara, sem Hansen konsúllánú,
og hús Ólafs smiðs, sem selur nú alt sitt og fer til Rvíkur. Pá
hefir Sig. múrari reist sér nýtt hús úr steypu og segir hana reyn-
ast vel. Öll eru þessi hús í brekkuhallanum ofan götu. En fyr-
ir neðan götuna og úti í sjónum sést löng þakhlið. Bað hús er
Pórshamar. Bar gátu forðum lagt að stórskip, en af framburði
ánna er það nú lítt fært. Stórhýsi þetta bygði danskt síldarveiða-
félag undir forustu V. T. Thostrups o. fl. 1882. Petta félag hætti
störfum nál. 1890 og keypti þá O. Wathne húsið og hafði fyrir
síld og tunnur og eins erfingjar hans nú. Pað er afarmikið hús,
og mest þakið, áþekt Barónsfjósinu í Rvík.
Pá kemur Garðarsfélagið með hús sín og bryggju. Á
þeim stað bygði fyrst Svendsen, Norðmaður, 2 hús 1880. Annað
brann '84 en Pöntunarfél. Fljótsdæla keypti hitt '85. Pað lamd-
ist í aurskriðu og rytjuna notaði það í hina gömlu búð sína utar
á Eyrinni. En hús Garðars, sem Hansen býr í nú, bygði Pönt-
unarfél. úr viði, sem Bindindisfél. Seyðisfj. pantaði og ætlaði sér
í hús, og verzlaði þar um stund til þess er það færði sig út eftir,
en Hansen keypti húsið 1897 og seldi síðan Garðari. Pað fél.
bygði þar utan við íshús og tvö vöruhús og öll stór og bryggju
fram undan öllum, þá mestu hér á landi. Hún kostaði milli 30 og
40 þús. kr.1 Ekkert af þessu er komið þegar myndin er tekin,
aðeins sést Hansenshús yfir Pórshamar ofan til.
Næsta stórbyggingin sem sést, líka að nokkru úti í sjónum,
er kölluð í daglegu tali »Angróin«. Pað var aðalbryggja O.
Wathne’s. Par bygði O. W. fyrst fyrir félag eitt í Björgvin 1880
og áttu þar mest í Jens Gram o. fl. Wathne keypti svo húsin
og bygði bryggju 1885. Par hafði hann stórverzlun sína '95 og
þaðan er nafnið. Par eru afarmikil stakkstæði með járnbrautar-
1 Alt þetta heíir nú bærinn keypt 1903, og leigir gufuskipafél. hús og bryggju.