Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1903, Side 24

Eimreiðin - 01.05.1903, Side 24
104 hans og Friðrik Gíslason ríða og mikið og vel. Ekki heíi eg séð menn glíma hér og munu það fáir kunna, en ab fóthnöttum hafa menn oft leikið hér á túninu á sumarkvöldin með kappi og fjöri og veriö um það í félagsskap, og væri vert að hlúa að þeim leik. Glímur sýnast svo vandlærðar og vandasamar og svo mikið af þeim heimtað, að þær verða tæplega alþýðugagn, enda komin yfir þær einhver þjóðhelgi, sem gerir menn enn þá deigari við að láta sjá þær til sín, svo nú fást þroskaðir menn varla til að glíma og drengir vilja varla læra það, þrátt fyrir allar eggjanir og örvandi ræður um þjóðarsóma og þjóðlega list. Seyðisfjörður er hér víst ekkert einstakur að því leyti. Petta, sem nú er talið, mun vera það helzta, sem menn hafa sér hér til fjörgunar eða skemtunar vetur og sumar. Hér er nóg af félagslyndum mönnum, sem vel kunna að meta fjörugt samlíf og örvandi íþróttir, og gætu gert bæjarlífið fullskemtilegt, ef þeir gæti tekið höndum saman. Vegalengdirnar gera hér mikið til að skilja menn að og slíta samböndin, því fyrst er Vestdalseyrin að kalla má algjörlega einangruð á vetrum og þangað ófærur og ör- æfi, og vegakostnaðurinn hér hefir gert Seyðisfjörð einn af þeim fáu stöðum á þessari jörðu, þar sem mönnum þykir ódýrra að kaupa sér vatnsstígvél en að gera göturnar svo góðar að þær sé færar stígvéla- eða skinnsokkalaust. Milli Búðareyrar og Öldu er og langt í vondu veðri, og þó það sé hlemmivegur á sumrum, þá getur hann verið viðsjáll á vetrum. Lítil saga getur sannað þaö: Ég var á göngu út til Búðareyrar eitt vetrarkvöld í skuggsýnu veðri með Ernst lyfsala og fleirum. Snjór var á allri jörð og sá hvorki vegi né brautir. Við vórum komnir út að graflækjunum fyrir utan Guðmund Björnsson og höfðum við Ernst sökt okkur ofan í flókin vísindaleg efni, eins og okkur var lagið, og veit ég þá ekki fyrri til en Ernst hverfur okkur þar ofan í fanndjúpið með broddstaf og öllu saman, eins og margfætla niður í mjólkur- trog, og það var að þakka snarræði mannsins og hjálp minni, að Seyðfirðingar fengu ekki tíma til að gráta yfir því, að þeir áttu þá engan lyfsala ofan jarðar. Snjóarnir setja líka stundum svo háa skaflhryggi yfir göturnar, at Nielsen á nóg með að komast suður á apótek, og má þá nærri geta hvort ekki reynir á augna- karlana í okkur hinum. Guðmundur Hávarðsson hefir reyndar

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.