Eimreiðin - 01.05.1903, Síða 28
io8
IV. árg. prentað þar síðast, 19. desember '87. En 22. númerið
kemur út á Akureyri 28. maí 1888. Otto Wathne undi því nú
illa, að steinhljóð væri um þau stórtíðindi, sem gerðust í konungs-
ríkinu á Seyðisfirði, og lét því tveim árum síðár skinna upp gömlu
prentsmiðjuna og stofna Austra hinn yngri og réð mann til, sem
hann vissi nógu brjóstheilan. Hann neyddist þó til eftir því, sem
hann sagði sjálfur, að losa nafn sitt frá blaðinu nokkru síðar. En
þá varð blaðið ýmsum efnamönnum hér svo nærgöngult fjár-
munalega, að þeir Sig. kaupm. Johansen og Stefán Th. Jónsson
keyptu prentmiðjuna af gamla félaginu og stofnuðu Bjarka 1896.
Bæði blöðin koma út enn. Samkomulagið hefir verið dálítið köfl-
ótt, sem búast er við, þar sem menn og stefnur eru dálítið ólík-
ar, og hvor á sína vini. Norðmýlingar standa í heild sinni nær
Austra en Bjarka, einkum Héraðsbændur og eins er um Sunn-
mýlinga. Aftur á Bjarki góða vini í fjörðunum, og er raunin þar
ólygnust, því það sáu allir, að ritstjóri Austra fór einsamall með
son sinn héðan á kjörfund síðast. Héraðsbændur una því ekki,
sem von er, að geta ekki keypt ritstjóra eins og hvað annað,
þegar þeir ríða á Seyðisfjörð. Petta verða menn að vita, til þess
að geta skilið blöðin til fulls og bæjarbraginn hér um þessar
mundir.
Af listunum er sönglistin hér almennust eins og annarstað-
ar, en dálítið minna misbrúkuð, og er það að þakka Kristjáni
lækni og Elínu fóstursystur hans Tómasdóttur og svo Jósefínu
konu sýslumannsins. Hún er frá Kornsá. Lárus Tómasson er
einn í því félagi og svo þolinmóður, að hann heflr stundum leikið
fyrir mig gömlu kóralana langt fram á nótt. Honum þykir líka
vænt um þá. Pessum mönnum er það að þakka, að sönglistin er
hér fremur lítið misbrúkuð.
ATVINNA. Hún er hér mest starfið við verzlanirnar, sjáv-
arútgerð og dálítið jarðrækt. Sig. Johansen, Þórarinn Guðmunds-
son, Stefán Jónsson og Einar Hallgrímsson veita hér allir mikla
atvinnu, og eins Friðrik Wathne. En bróðir hans, Otto Wathne,
hafði mest Færeyinga, karla og konur, við vinnu hjá sér, og því
varð innlendum mönnum minna gagn að henni; samt hafa þar
margir atvinnu.
Garðarsfélagið hefir veitt hér mikla atvinnu nú tvö síðustu
árin og t. d. borgað hér á þeim tíma í verkkaup og viðskifti ná-
lægt 60 þúsundir króna. Pá höfðu margir góða atvinnu og