Eimreiðin - 01.05.1903, Side 33
geta ekkert lag lært af sjálfura sér, því nótur eru þeim alt aö því
jafn-óskiljanlegar eins og helgirúnir; með öörum orðum: þeir hafa
engin veruleg not af nótnakunnáttu sinni. Eitt af aðalætlunar-
verkum allrar söngkenslu í öllum almennum mentaskólum er þó
óneitanlega það, að opna mönnum aðgang að því, sem ritað er
og samið á þessu eina alheimsmáli mannkynsins, alveg eins og
önnur mál eru mönnum kend, til þess að þeir geti skilið málin í
ræðu og riti og lesið sér til gagns og gamans bókmentir annarra
þjóða. Með þessu er ekki sagt, að rétt sé að nema alla utanað-
kenslu burt úr öllum skólum. Pað er sjálfsagt að láta börn byrja
á henni, sem ekki eru orðin nægilega þroskuð andlega, til að
skilja þau undirstöðuatriði, sem önnur söngkensla byggist á; en
það er jafn-sjálfsagt að hætta þeirri kensluaðferð, eins fljótt og
fært er. Börnum eru kendar bænir og ljóð, áður en þau þekkja
stafina, en 'engum kemur til hugar nú á tímum að láta þar við
lenda. Pegar skilningurinn eykst, þá er þeim kent að lesa, til
þess þau geti lært bænir, ljóð og annað af sjálfum sér. Og
eins á að fara að, þegar um söngkenslu í skólum er að ræða.
Paö er nauðsynlegt og sjálfsagt í þessari grein eins og öðrum, að
fylgt sé reglubundnum kensluaðferðum, sem eru í samræmi við,
eða að minsta kosti ríða ekki í bága við, meginreglur allrar
fræðslulistar.
Vér erum þá komnir að þessari niðurstöðu: 1 barnaskólum
og öðrum almennum mentastofnunum á söngfræðiskenslan að vera
þannig, að nemendurnir læri ekki aðeins nöfnin á nótunum, heldur
að syngja eftir þeim líka, svo að þeir geti af eigin rammleik,
án nokkurs hljóðfæris, sungið meðal-sönglög frá blaðinu (a prima
vista), þegar náminu er lokið. Pess verður að krefjast í öllum
skólum, þó að kröfurnar verði auðvitað að vera nokkuð mismun-
andi eftir námstíma og þroskastigi nemendanna í hverjum skóla.
Eg býst við því, að sumum þyki hér til of mikils ætlast og
telji ógerning að kenna það á þeim tíma, sem söngkenslunni er
ætlaður. Til allrar hamingju þarf ég hvorki að færa fram líkur né
getgátur í þessu máli. Paö er fengin reynsla fyrir því í Dan-
mörku, Svíþjóð og víðar, að á 4 árum má kenna öllum þorra
barna, hvað þá fullorðinna manna, að syngja hvert meðallagi
vandasamt lag eftir nótum eða frá blaðinu, sem kallað er, með
tveggja stunda kenslu á viku, jafnvel einnar stundar eða tveggja
8