Eimreiðin - 01.05.1903, Qupperneq 52
32
haldið áfram í útsuður. Þar hefst hinn eiginlegi Sprengisandur og nær
alla leið suður að Eyvindarkofaveri. Er þá stefnt vestan við mikinn
hæðaklasa, Fjórðungsöldu. Á svæðinu millum Kiðagils og Fjórð-
ungsöldu er hingað og þangað dálítið af mosa og í dældum ofurlítil
grassnöp (fyrir fé). Fyrst er riðið fram með einni af uppsprettum
Kiðagilsár, síðan er farið yfir Kiðagilsdrag, þá Heildrag, svo fram með
Kvíslarbotnum og yfir Klyfberadrag, sem alt eru dældir, er stundum
fyllast af vatni, en úr þeim er afrensli austur í Fljótið. Því næst er
haldið upp á við og komast menn þá brátt á móts við Fjórðungsöldu.
Hafa menn þá nokkra hríð getað greint landnorðurhornið á Hofsjökli,
en nú sést það greinilega; og nú má og eygja
Tungnafellsjökul og útnorðurhorniðá Vatnajökli.
Enn er stefnt í útsuður og riðið fram pjóRÐUNGSAI,DA^(l)^ í
með Fjórðungsvatm, sem er aflangt vatn fyrir sugr; á bak við hana
vestan Fjórðungsöldu, sem stundum þornar Tungnafellsjökull (2).
upp á sumrin.
Frá Kiðagili að Fjórðungsöldu er 3 st. reið, fram með
Fjórðungsvatni 1 st. reið
Vegurinn liggur enn í útsuður (frá suðurendanum á Fjórðungsvatni
liggur leiðin til Jökuldals út af aðalleiðinni — 3 st. reið) yfir það
svæði, er vötn deilast og falla bæði suður og norður. Brátt fer sand-
inum að halla suður á bóginn. í’jórsá sést ekki. Hofsjökull er á
hægri hönd, en Tungnafellsjökull fram undan til vinstri handar. Svo
er farið yfir Fjórðungakvísl, sem kemur úr Tungnafellsjökli. Hún er
slæm yfirferðar á vorin.
Frá Fj órðungsöldu að Fjórðungak vísl 2—3 st. reið.
(x/2 st. síðar liggur Arnarfellsvegurinn út úr vestur yfir f’jórsá; þar
eru hlaðnar vörður) — Nú er farið yfir Hafurmýrardrag og -kvísl. —
VIÐ NORÐURRÖND VATNAJÖKULS (séð frá svæðinu fyrir sunnan Kiðagil).
1. Dyngjufjöll. 2. f’ríhyrningur. 3. Trölladyngja. 4. Kistufell. 5. Vatnajökull.
(Þar liggur út úr leiðin til Jökuldals fyrir þá, sem koma að sunnan).—-
Arnarfell it mikla er beint í vestur. ■— Hér má nú líka koma auga á
j’jórsá. — í’á er farið yfir Hreysikvísl.
Frá Fjórðungakvísl að Hreysikvísl 4 st. reið.
Frá Hreysikvísl að Eyvindarkofaveri 3ji st. reið.
Eyvindarver eða -kofaver er stórt, mýrlent og grösugt lág-
lendi, sem gengur eins og flói inn úr f’jórsárdalnum. Þar er ágæt
beit. Menn tjalda sunnantil á mýrunum við rústirnar af Eyvindarkofa.
Frá Eyvindarveri er riðið í útsuður fram með jj’jórsá að Sóleyjar-
höfða.
Rétt fyrir neðan Eyvindarver er farið yfir Eyvindarkvísl með nokk-
uð blautum sandbotni. Síðan er riðið vestur fyrir Sandvatn, sem er
lítið stöðuvatn, og jafnharðan á eftir austur fyrir Eyvindarvatn, sem er
nokkru stærra. Þá er farið austanvert við stóra grasflá, hið svo nefnda
Þúfuver, og eru útjaðrar þess blautir og hættulegir. Gegnum flána