Eimreiðin - 01.05.1903, Page 59
139
ET'UJ Q:
Sx ^
S* I s
• crq r1
P HH
cc nT1
' r- œ
M C
'ju ö
£T • p3
■ö' k r1
Coq’ g
í g: »
■ cS S!
3 ’ M
b- <<x
5T 3 -3-
g"Æ.o
r»’f
leiðin í boga fyrst í útnorður að Laugafelli, síðan að Eystripollum og
þaðan í norður með ofurlitlurn halla til landnorðurs að Ullarvötnum og
þaðan í austur niður í fjörðinn.
Menn stefna beint á Laugafell, sem sést eins og ,
einstakur hringmyndaður kollur góðan kipp fyrir norðan i| L
Hofsjökul. Menn fara yfir Bergvatnskvísl (= Bergkvísl)
og fara svo upp á móti með hana á hægri hönd. ^
Þegar hana þrýtur er xo mfnútna reið yfir vörpin, unz £L
menn koma að upptökum Laugakvíslar, sem er ein af 'gi
uppsprettum Jökulsár hinnar eystri. Er þá riðið fram &
með hægri bakka hennar, með Laugafell á vinstri hönd
og Laugaöldu á hægri. Við ræturnar á Laugaöldu
vestanverðri koma menn að laugum við eina af upp-
sprettum Laugakvíslar, sem kemur frá norðurrótunum á
Laugaöldu. Þar eru allviðunanlegir hagar. %
Frá Sprengisandsveginum að Laugafelli • s'
3'1/*—4 st. reið.
Frá Jökuldal að Laugafelli 61/*—7 st. reið.
Frá Arnarfelli inu mikla yfir Þjórsárkvíslar í
landnorður og téða leið að Laugafelli 9—10 st.
reið.
Frá Laugafelli er riðið yfir grýtt svæði í út-
norður og farið yfir litla á á leiðinni að Eystripoll-
um — skamt frá Jökulsá hinni eystri — U/2 st. reið.
Við Éystripolla eru góðir hagar. Menn finna þá, ef
ekki er farið of norðarlega. Annars er ekkert til að
miða stefnuna við á þessari leið. I dimmviðri eða
þoku ættu menn helzt að halda sér við hina eystri upp-
sprettu Laugakvíslar, síðan hana sjálfa að Jökulsá og
svo þaðan áfram að Eystripollum. Er þá komið á hinn
svo nefnda Vatnahjallaveg, sem liggur af Kjalvegi
beint að fjallinu Vatnahjalla inn af Eyjafirði. Er það
fremur ógreiður og grýttur vegur, einkum síðasti kaflinn.
Frá Eystripollum er haldið í norður og ögn til
landnorðurs og er þá farið yfir eintómar urðir upp á
móti að Ullarvötnum, sem eru 3 smávötn í auðn fyrir
vestan Vatnahjalla, einkennilegt tjall, sem vegurinn
dregur nafn sitt af. Menn koma að suðurenda vatn-
anna, fara fram með þeim að austan og stefna í norð-
ur með Hjallahnúk, einstakan hnúk, á hægri hönd,
unz menn koma á brúnina fyrir ofan Eyjafjörð. Á síð-
asta kaflanum eru gamlar vörður, sem þó ekki ætíð
eru á sem hentugustum stað. Leiðin niður í fjörðinn
er örðug og svo er riðið í norður að bænum Tjörnum,
sem liggur þar inst, austan árinnar. En þar fyrir vest-
an og nokkru sunnar liggur dálítið kot.
Frá Eystripollum að Ullarvötnum........................ 2 st. reið
Frá Ullarvötnum á fjarðarbrúnina....................... ix/g —
Af fjarðarbrúninni niður í botn hans................... x/2 —
■:«