Eimreiðin - 01.05.1904, Síða 50
130
8. Pú mátt ekki stugga við mér fyrir það, að ég er óséleg
i útliti og óþokkalega til fara; viðlíkt vóru þeir á sig komnir,
frægðarmaðurinn Feidías1, þegar hann bjó Sevs til, og Polýk-
leitos, þegar hann myndaði Heru; upp úr slíku standi og lífs-
kjörum hlotnaðist Mýroni hrós og Praxítelesi aðdáun; menn
heiðra þessa menn jafnframt guðunum. Ef þú nú yrðir þeirra líki,
mundir þú þá ekki verða frægur meðal allra manna og gera föður
þinn öfundsverðan, en ættborg þína nafntogaða um víða veröld?«
Slíkt og annað fleira sagði nú Steinhöggvaralistin og var mál-
hölt í tungutaki og bögumælt, enda bar hún óðan á, er hún vildi
fá mig á sitt band. Eg man það nú ekki lengur, og flest af því
er mér úr minni liðið; en þegar hún hafði úttalað, tók hin konan
þannig til máls:
9. »Kæra barn mitt! ég er Lærdómslistin, sem þú hefur
þegar kynst við og þekkir, þó ekki hafi þér enn orðið þess auðið,
að þekkja mig til hlítar. Konan þarna hefur nú talið upp þau
gæði, sem þú munir hljóta þegar þú ert orðinn steinsmiður. Pú
verður sem sé ekkert annað en handverksmaður, sem vinnur með
líkamanum og byggir alla sína lífsvon á honum, maður ófrægur,
sem fær lítið kaup og lélegt, auðvirðilegur í hugsunarhætti og
óburðugur í ytri háttum, hvorki mikilsvirður vinum né ægilegur
óvinum og ekki heldur öfundsverður í augum samborgara þinna,
það er með öðrum orðum ekkert annað en handverksmaður, einn
af múgnum, einn slíkur, sem buktar fyrir öllum þeim, er hærra
eru settir; maður sem lifir eins og héri og verður hinum yfirsterk-
ara að bráð. Og þó þú yrðir slíkur myndasmiður sem Feidías og
skapaði mörg aðdáanleg listaverk, þá mundu reyndar allir lofa list
þína, en enginn heilvita maður mundi óska sér að vera jafningi
þinn, því hvað snjallur sem þú yrðir í list þinni, þá yrðirðu samt
aldrei metinn öðruvisi en handverksmaður, sem lifir á handafla
sínum.
10. En ef þú þar á mót vilt hlýða mér, þá skal ég fyrst og
fremst sýna þér margt og mikið, sem eftir fornmenn liggur; ég
skal gera þér kunnug aðdáunarverk þeirra og orð, og fræða þig
1 Feidías, myndasmiðurinn frægi, vinur Períklesar (500—430 f. Kr.). Af
myndum hans vóru frægastar Aþenulíkneskjan í Parþenon og Sevs líkneskjan í
Ólympíu. Polýkleitos, ágætur myndasmiður, honum samtíða; Mýron (um 450 f. Kr.),
frægur fyrir eirlíkneskjur sínar; Praxíteles (á 4. öld f. Kr,), einnig fyrirtaks mynda-
smiður.