Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Síða 11

Eimreiðin - 01.01.1912, Síða 11
sem vernduðu þá og fylgdu þeim á líkan hátt og englarnir Gyð- ingum. Parna kemur fram trú Noröurlandabúa á kvenneðlið, í insta eðli sínu. feir trúðu því, að konur (nornir) kæmu til barnanna nýfæddra og rektu þeim örlagaþræði —sköpuðu þeim aldur. Og þeir trúðu því, að dísir og fylgjur leiddu fullorðnu mennina á lífsleiðinni. Og enn þá lifir þessi trú í máli manna og hugmyndum. Vér tölum um heilla-dísir og hamingju, og eru þær hugmyndir allar kvenkendar, og sjaldan eru nú englarnir nefndir á nafn í saman- burði við þær. Annars verður þess eigi vart í sögunum, að forn- menn hafi dáðst aö þeim kostum kvenna, sem runnir eru af rót- um ástar og þolgæðis. f’eim er jafnvel brugðið oft og víða um tilfinningaríki og hverflyndi. »Köld eru kvenna ráð,« sagði Flosi við Hildigunni, þegar hún steypti yfir hann skikkjunni Höskuldar. — sþekki ek ákafa kvenna,« mælti f’orvarður að Fornastöðum við konu sína, þegar hún eggjaði hann til bardaga með syni sín- um. Og í Hávamálum er þetta m. a. um konurnar kveðið. ... »á hverfanda hveli vóru þeim hjörtu sköpuð og brigð í brjóst lagin«. Reyndar er þó ekki svo að skilja, áð fornmenn dragi sann- mælið af konunum í þessum ádeilu-orðum. Feir hafa ef til vill hugsað því líkt, sem Benedikt sál. Sveinsson mælti eitt sinn: sÞví meiri hæfileikar, þess meiri breyskleiki.« En hvernig sem fornmenn hafa litið á þessi efni, þá er það bersýnilegt að þeir hafa trúað því, að konum væri gefinn mikill máttur. Peir báru og mikla lotningu fyrir dularöflum kvenkyns- ins. Auðséð er í sögunum, að völvurnar hafa verið álitnar svo sem drotningar meðal almennings, því að þeim var tekið með rausn og höfðingsháttum, þegar þær komu til búhölda eða ann- arra höfðingja. Stundum vóru gerðir menn á fund völvunnar og henni boðið til veizlu. Var þá kostað kapps um, að gera völv- unni gott í skapi með gestrisni og fégjöfum og lotningu, því að fornmenn trúðu því, að völvur gætu hefnt sín á þeim mönnum, sem þeim mislíkaði við. Pessi kyngikraftur virðist hafa búið með konum, fremur en körlum; hvort sem verið hefir, að trú almenn- ings hefir átt þátt í því, eða svo hefir verið í raun og veru. Hátt-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.