Eimreiðin - 01.01.1912, Side 36
36
í’ingeyjarsýslu. Vakti sú glíma hina mestu eftirtekt og umtal um
alt land, og var ekki laust við, að fleiri óskuðu sig þá komna til
leiks, en því fengu við komið, ekki sízt »Ármenningar« úr Reykja-
vík. Var og í ráði að senda menn þaðan, en ferðir féllu þá svo
illa, ’að !þess varð eigi kostur, og urðu menn að láta það bíða
betri tíma. Við þessa Íslandsglímu bar sigur úr býtum Jóhannes
Jósepsson, enda
hafði hann um nýj-
ársley tið heitstrengt,
að hann skyldi halda
velli á Pingvelli 2.
ágúst það ár, er
glímt yrði fyrir kon-
ungi vorum Friðrik
VIII. Af því kunn-
ugt var orðið um
þessa heitstrenging,
var mönnum mikil
forvitni á, hvernig
honum mundi af
reiða við þessa ís-
landsglímu. Hann
vann þar frægan sig-
ur, og sýndi svo
frækilega fratn-
göngu, aðhannvarp-
aði um leið ljóma
yfir glímuna.
Priðja Islands-
glíman fór etin fram
2. JÓHANNES JÓSEPSSON. á Akureyri, þótt
þess hefði óskað
verið, að hún yrði háð í Reykjavík.^ En það er talin skylda, að
sækja beltishafa heim, og þar sem hanu átti heima á Akureyri,
var glíman enn haldin þar, 8. júní 1908. Þá glímu sóttu auk
beltishafans, Jóhannesar Jósefssonar, 11 glímumenn úr Pingeyjar-
sýslu. Gerðist það sögulegt á þeim fundi, að menn urðu ekki
sammála um byitur, keppendur hálfreiðir, slys vildi til—og blöð-
in skömmuðu menn á báða bóga. Reis af þessu hið mesta um-