Eimreiðin - 01.01.1912, Síða 50
5°
Á eftir glímunum hófst reipdráttur1, og þótti áhorfendum
hann allgóð skemtun.
Petta leikmót, sem var aðalskemtunin á þjóðhátíðinni, var
þó ekki nema byrjun, eða undirbúningur undir annað betra, þar
sem þá vantaöi enn leikvang (íþróttavöll), til þess að geta reynt
það, sem ekki vóru tiltök að gera nema á góðum leikvelli. I öðru
lagi vóru hér enn svo afarfáir, sem gátu eða kunnu nokkuð ann-
að en að glíma; vantaði þá æfinguna frá upphafi, — en til þess
að efnilegir íþróttamenn gætu fengið fyrirmynd til að æfa sig
eftir, var þetta þó góð byrjun.
Að íþróttunum loknum var verðlaunum útbýtt á hátíðasvæð-
inu, og var þetta hið fyrsta leikmót, þar sem veittir vóru verð-
launapeningar og vegsaukar (heiðursskjöl).
LEIKMÓT UNGMENNAFÉLAGA ÍSLANDS.2 Éau leikmót
hafa verið háð hingað og þangað um landið á síðustu árum, en
þó einkum í Rvík, á Norðurlandi (á Akureyri og Húsavík) og við
Pjórsárbrú.
Á Norðurlandi hafa verið haldin 3 leikmót, og var hið fyrsta
þeirra háð á Akureyri 17. júní 1909. Fóru þar fram skeið,
ganga, glímur,sund,soppleikur3 * (knattspark) ,hástökkoglang-
stökk. Pangað sóttu margir ungir tápmenn, og í glímunum tóku
þátt nær 30 manna á ýmsum aldri. Var þeim skift í flokka eftir
þyngd og verðlaun veitt í hverjum flokki. I I. fl. (undir too pd.)
hlaut verðl. Júlíus Sigurðsson (Akureyri); í II. fl. (100—120
pd.) Jón Kristjánsson (Akureyri); í III. fl. (120—145 pd.) Jakob
Kristjánsson (Akureyri) 1. verðl. og Jón Haraldsson (Einars-
stöðum) 2. verðl.; í IV. fl. (145—165 pd.) Sigurður Sigurðs-
son (Öxnhóli); í V. fl. (yfir 165 pd.) Jón Jónsson (Skjaldar-
stöðum).
Bæði í hástökki og iangstökki hlaut Kári Arngrímsson
frá Ljósavatni 1. verðlaun.
1 IJað nafn er betra en „reiptog" (sbr. skinndráttur, beltadráttur og „er vib
ramrnan rcip að draga11).
2 Eessi mót hafa verið kölluð „í þ r ó 11 a m ó t“, sem er þýðing á danska nafn-
inu „Idrætsmode11, en styttra og þýðara er „leikmót11, sem er okkar eigið nafn;
svo kölluðu forfeður vorir slík mót.
3 Svo kallast knattspark eða „fótboltaleikur'1 r Karlamagnássögu, og virð-
«t réttast að nota það nafn. — Knattleikur er annað.