Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 2

Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 2
«58 En yfir drífa, vestur, vindhrökt ský og vefja loftiö gráa dúnsæng í. Við horfum báðir hljótt í mökkvann inn. — í norðri þyrpast þykkir éljaflokkar — Mig grunar, vinur, nú í síðsta sinn á sömu brautir leiti hugir okkar. III. ÍSABROT. Eftir svellsins eyðiþunga aftur kvikar vatnið létt. Frjálst nú byltist aflið unga inn við bakkans klakastétt. Dregur anda djúpsins lunga djarft um sérhvern vakarblett. Bárur glitra, gárar titra. Glaða sól við jörðu hlær. Lækjarslitrur suða og sitra. Sölnar fjallsins hvíti snær. Mæða vetrar máttinn bitra morgunskin og sunnanblær. Allir vorsins ungu söngvar óma gegnum huga rninn. Víkka hjartans vonir þröngvar. Vermist blóð, en roðnar kinn. Orðlaus gleði öldum slöngvar upp í breiðan himininn. IV. FALLNAR TÓTTIR. Hér er nierki um læging þessa lands: Leifar dáins kyns og horfins starfs. Túnið sokkið hálft í hafi sands; hörmulega gætt hins dýra arfs, sem skópu harðar hendur einyrkjans í hörkustriti fyrir börn og víf. — Tað megnar lítt gegn myrkri nútímans, að muna, að hérna var þó eittsinn líf. V. MARGSKONAR SKÁLDSKAPUR. Fagurt er: að yrkja í litum, orðum, eða línum, hljómsins bylgjur leysa. Mikið er: í stáls og steina skorðum stórvirki úr hugans draumum reisa. En mest er þó: á óró æstra hranna að yrkja ljós og kyrð í sálum manna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.