Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 58

Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 58
214 skilning sinn á því, að skáldið brúki orðin í annarri merkingu, en til er í íslenzku — og finst ekkert athugavert við það. Léttan, þéttan byrðing beins Sléttan, skvettinn otur eins bygðu þjóðir alda. útbjó flóðið kalda. Um þetta fer dr. G. F. svofeldum orðum: »Um þessa vísu segir dr. V. G.: »Manni liggur við að taka undir með Jóni sál. Þorlákssyni og hrópa: Hver skilur heimskuþvætting þinn? — þú ekki sjálfur, leir- uxinn«. Mikils þykir honum við þurfa, og þó er vísan svo auðskilin, að broslegt er að skýra hana: Alda þjóðir (þ. e. margar kynslóðir) bygðu léttan, þéttan byrðing beins (þ. e. húðkeipurinn). Eins útbjó flóðið kalda (þ. e. hafið) sléttan, skvettinn otur. Húðkeipurinn var með öðrum orðum eins vel gerður frá mannanna höndum og oturinn frá náttúrunnar«. En þó að þessi skýring (sem líklega fer nærri hugsun E. B.) væri tekin gild, þá væri samt ekki allfátt við bæði vísuna og skýringuna að athuga: 1. Það er fullkomlega heimildarlaust, að láta »alda þjóðir« þýða »margar kynslóðir*, því »þjóð« þýðir aldrei »kynslóð« (generation), heldur sérstakur landslýður (nation), og »öld« þýðir annaðhvort «menn« eða »tímabil«, í fommálinu óákveðið, en nú vanalegast ioo ár (sbr. þó »mannsaldur«). »Alda þjóðir« getur því, ef þessi orð eru rétt notuð, ekki þýtt annað en annaðhvort »manna þjóðir« eða »tímabila (nánast ioo ára) þjóðir« o: þjóðir, sem hafa lifað í fleiri aldir. En það er víst ekkert einkennilegt fyrir Skrælingja eða Eskimóa, því flest- ar þjóðir munu eiga sammerkt í því, að hafa lifað svo lengi. »Alda þjóðir® er því hér meiningarleysa, sem staka góðgirni þarf til að fá nokkurt vit í. 2. Að kalla húðkeip eða skinnbát Grænlendinga »byrðing beins«, er sannarlega ekki vel valið. Því »byrðingar« voru stór, fremur lura- leg, breið og borðhá flutningaskip (naves onerariœ), sem enn vóru í brúki á Vestfjörðum á dögum Páls Vídalíns (sbr. Fornyrði Lögbókar 446—448), og því harla óviðeigandi að kalla hinn létta, mjóa og grunna húðkeip því nafni. Auk þess er hinn hluti kenningarinnar líka illa valinn, því hann bendir á, að húðkeiparnir séu aðallega úr beini, þar sem sannleikurinn er, að þeir eru því nær eingöngu úr skinni, með veigalitlum innviðum úr tré, en ekki beini (þó menn kunni ein- hverntíma að hafa notað bein, þegar ekki náðist í tré). í »0rvalsrit- um« Sig. Breiðtjörðs, sem E. B. hefir sjálfur út gefið, lýsir S. B. húð- keipum Grænlendinga þannig (bls. 238): »Skinnbátar þessir eru hnýfla á milli 7 álna langir, hérum alinnar breiðir og hálfa alin á dýpt; þeir eru þannig gjörðir, að trégrind er að innan, og þanið um selskinn, og lokað ofanvert; þar á er gat í miðju, svo stórt aðeins, að maður- inn fái sér þar niður komið, og situr hann þar réttum beinum að róðri, hvert sem hann fer«. Eins og af þessu má sjá, eru húðkeiparnir harla ólíkir byrðingum, sem oft voru haffærandi skip, enda getur hver sannfært sig um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.