Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 36

Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 36
ig2 Fyr á tímum héldu menn þó, að þau væru mikil og margvísleg. Einkum ríkti sú skoðun meðal þáverandi lækna, að blóðið yrði ljósleitara við áfengisnautn og gæti næstum orðið hvítt sem mjólk. Ef til vill er það þessi gamli hleypidómur, sem hefir vakað fyrir skáldinu Hannesi Hafstein, er hann orti hinn alkunna vínsálm sinn (sbr. »þreyttust menn við bú að baksa, blóðið varð svo dökt í þeim« o. s. frv.). Hinn ljósi litur átti að orsakast af rýrnun og hnignun rauðu blóðagnanna og af aukningu hinna hvítu blóðfrumla og fituefna blóðsins. En rannsóknir seinni tíma hafa alveg koll- varpað þessum skoðunum, og það er nú sannað, að áhrif vínsins á blóðið sjálft og blóðagnirnar eru næstutn hverfandi, og skaða hvorki efnasamband þess né byggingu (Morphologisk Stmctur). Blóðfrumlurnar endurnýjast einnig í sífellu, gamlar eyðast og nýjar koma í þeirra stað, bæði frá beinmergnum og miltinu. Hér er því alt öðru máli að gegna, en um frumlur miðtaugakerfisins (Ganglie- og Nerveceller), sem sumar hverjar yfirleitt aldrei endurnýjast. Af þessu sést meðal annars, að ofdrykkjueitrunin hefir langtum skað- legri áhrif á taugakerfið en á blóðið. Margir læknar eru þó þeirr- ar skoðunar, að hinir gerladrepandi eiginleikar blóðsins rýrni við mikla áfengisnautn, og einkum í og eftir djúpa ölvímu. Svæsnir bindindismenn tala oft um hin skaðlegu áhrif vínnautnarinnar á blóðið og blóðfrumlurnar, sem þeir segja að verði hrukkóttar og broddóttar og hlaupi í kekki af völdum áfengisins; en þessi stað- hæfing er alveg röng. Aðrir halda því fram, að vínandinn í hin- um áfengu drykkjum, er menn drekka, geti hreint og beint upp- leyst blóðagnirnar; en þetta er einnig fjarstæða, því til þess þyrfti blóðið að innihalda i4°/o af hreinum vínanda, en hjá dauðadrukn- um mönnum hefir aldrei fundist meira en i°/0 af hreinum vínanda. Ofdrykkjueitrunin (chronisk Alkoholisme) hefir þó stundum blóðrýrnun (Anœmi) í för með sér, sem þó sennilega orsakast af eða fylgir hinni almennu líkamshnignun ofdrykkjumannsins, en ekki af beinum afleiðingum áfengisnautnarinnar. Pað hefir verið deilt mikið um, hvort gigt og gigtarsjúk- dómar stöfuðu af áfengisnautn eða ekki. Par til má strax svara, að gigtin kemur oft fyrir hjá bindindismönnum og fólki, sem al- drei hefir bragðað vín, og er miklu tíðari en ofdrykkjan. Gigtin ásækir mest hinar efnaðri stéttir mannfélagsins, einkum þá, sem hneigðir eru til sællífis og óhófs í mataræði og auðvitað einnig öl- og vínberserkina. Fátæklingar, sem verða að láta sér brenni-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.