Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 76

Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 76
232 son. — f »Hamburger Zeitung* (io. jiíní 1913) og í »Tidens Tegn« (15. sept. 1913) eru greinar um Poestion og þá jafnframt nokkuð um íslenzknr bókmentir. V. G. PAUL HERRMANN: ISLAND. Das Land und das Volk. Leipzig 1914. (Verð innb. M. 1,25). Bók þessi, sem er 113 bls., og með 9 myndum, er liður í miklu ritsafni, sem heitir »Aus Natur und Geisteswelt« (Nr. 461), og er höf. hennar oss kunnur orðinn af ferðum sínum á íslandi (1904, 1908 og 1911) og hinu mikla riti sínu um ísland: »Island in Vergangenheit und Gegenwart« (Leipzig 1907 og 1910). f’essi bók er þó ekki neinn útdráttur úr því riti, heldur alveg sjálfstæð bók, lýsing á landinu og þjóðinni. Skiftist landlýsingin í 5 kafla, þar sem skýrt er frá legu þess, dýra- og plöntulífi, jarðfræði o. s. frv. Lýsingunni á þjóðinni er skift í 6 kafla, en hverj- um þeirra aftur í smærri þætti. Er þar fyrst sögulegt yfirlit, þá um stjórnarskipun vora og stjórnarfar, um skapferli þjóðarinnar, um fólksfjölda og fólksfjölgun, lækna- skipun og heilbrigðisfar, um mannúðarráðstafanir, atvinnuvegi, samgöngur og fjármál, hýbýli, klæðnað, siði, hjátrú og íþróttir, um málið, trúarbrögðin, uppfræðingu, bók- mentir og listir. Eins og af þessu má sjá, er hér furðanlega miklu efni komið fyrir í litlu rúmi, og framsetningin þó jafnan skýr og skemtileg. Og mann getur ekki aiinað en furð- að á, hve mikið útlendingur, sem hefir miklum öðrum störfum að gegna og semur þetta í tómstundum sínum, veit um hagi vora. Auðvitað koma þar fyrir ýmsar smá- villur, en til þess er varla takandi, enda hægt að fyrirgefa, þar sem kostirnir eru svo yfirgnæfandi. Eins verður ekki til þess ætlast, að höf. þekki lög vor frá allra- síðustu árum, sem sjálfsagt eru heldur ekki til í neinum bókasöfnum, sem höf. hefir haft aðgang að. Hitt miklu meiri furða, hve mikið hann þekkir af nýrri breyting- ingum hjá oss og nýjustu rannsóknir um ýmislegt viðvíkjandi þjóðhögum vorum. Pað, sem á vantar, má laga í nýrri útgáfu og verður óefað gert. Yfirleitt má segja, að þessi bók sé ágætisbók, samin af mikilli þekkingu, góð- vild og talsverðri ritsnild. Hún verður óefað til þess að efla þekkingu útlendinga á Islandi að miklum mun og einn af hornsteinunum undir framtíðarstarfsemi »ís- landsvinanna« þýzku. Jafnvel íslendingar, sem þýzku kunna, ættu að fá sér þetta glögga og gagnorða yfirlit, sem kostar ekki nema rúma krónu í laglegu bandi. V G. IRA ISLANDS NÆRINGSLIV. Kristiania 1914. Þetta er allstór bók, 200 bls. í stóru broti, með sæg af myndum og ágætum ytra frágangi (pappír og prentun), að öðru leyti en því, að prófarkalesturinn er afarslæmur og prentvillur ódæma murgar og þær harla óþægilegar sumar hverjar. Efnið er fyrst inngangur um stjórnarfar íslands að fornu og nýju, eftir Bjarna Jóns- son frá Vogi, því næst lýsing á landinu og náttúru þess, eftir dr. Helga Jónsson, þá um atvinnuvegi þess, og loks skrá yfir kaupmenn, iðnaðarmenn, banka, bóksala, blöð o. s. frv. og grein um hvern einstakan. En ýmsum stórum kaupmönnum er þar þó slept, og af blöðum þekkir bókin ekki önnur en Birkibeina, ísafold og Austra. — Bókin kostar kr. 4,50, en meðlimir íslendingafélags í Khöfn geta fengið hana fyrir kr. 3,00. V. G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.