Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 4

Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 4
i6o IX. HIN VÍÐA HIMNAHEIÐI. Hin víða himnaheiði í stormi kvikar. Nú hristir skýjastóðið blóðrautt fax. Og ótal sílda silfurhreistur blikar við sævarbláma og roða horfins dags. í ljósum fölva fjarrir jökulhnjúkar við faldsbrún þungrar öldu hverfa sýn. En blæjur fela, bláar, silkimjúkar, í barmi kvöldsins heimalöndin mín. Eað lægir. Nóttin færir ró og rökkva, og rennur saman lofts og græðis flóð. Nú hljóðnar síbreið sævraauðnin dökkva — og sál mín verður einnig kyrr og hljóð. JAKOB JÓB. SMÁEI. Heimförin. Hvað sem til þess kom, þá vildi ég ómögulega vera nema tvö ár í Paradísinni hans Gísla fylgdarmanns míns. Heim vildi ég fara eftir eitt ár, en það var ekki við það komandi. Faðir minn skrifaði mér, að ég yrði að þreyja og vera úthaldsgóð, kallaði óhemjuskap að snúa við á miðri leið og gefast upp. Nú jæja, ég var þá þar í tvö ár, en eftir þann tíma héldu mér engin bönd. Orsakir þess, að ég fór heim, verða ekki sagðar hér, en það eitt man ég, að ég hafði mikla löngun til að læra á gítar (guitar) o. fl., en fékk ekki. það var aðeins kent fósturdótturinni frá Eyrarbakka; hún var ekki skyld dr. Hjaltalín, en eitthvað í ætt við frúna. — Yfir höfuð hafði ég þá ó- seðjandi námfýsi, sem ekki var svalað þar. Nú kom aftur sama spurningin og fyrri daginn: hvernig átti ég að komast heim. Hjaltalín, bróðir minn, vildi fá mann og hest; — nei, frúin hélt, að nóg skip færu á milli hafna á landinu. Já, nú var það óskaráð tekið, að láta mig fara með lausakaupmanni (»spekúlant«). Konsúll Smith sál. rak lengi verzlan í Reykjavík, og ætlaði þá að senda skip í »spekúlantstúr«, sem kallað var, vestur á Patreksfjörð, Grundar- fjörð og Stykkishólm. Var beðið um far handa mér og það fékst. Bróðir minn spyr, hver skipstjórinn sé; það var þá bróðir Smiths. Sá, sem átti að versla með vörarnar, var Samúel Richter sál., er lengi var kaupmaður í Stykkishólmi, dáinn nú fyrir þremur árum. — Nú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.