Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 31

Eimreiðin - 01.09.1914, Blaðsíða 31
i«7 þá aðallega af því, að hann meltist svo illa, brennur svo ófullkom- lega í líkamanum, þegar hans er neytt í lítt þyntum og stórum skömtum. Að áfengi hinsvegar í hæfilegri þynningu og neytt í hófi sé bæði allgott næringarmeðal og nautnarmeðal, leikur eng- inn vafi á. Flestir læknar og líffærafræðingar eru víst sammála um, að alveg óhætt sé fyrir flesta menn að drekka svo sem I — 2 staup af konjakki eða brennivíni á dag, ef þess er ekki neytt á fastandi maga. Margir fullyrða, að óhætt sé að drekka langtum stærri skamta af áfengi, án nokkurs skaða hvorki fyrir sál né líkama. Hinn frægi þýzki vísindamaður Pfeiffer heldur því meira að segja fram, að skaðlaust sé að drekka i—H/s pott af léttu víni daglega, auðvitað ekki alt í einu, heldur með öllum máltíðum, og einkum seinni hluta dags. Pfeiffer álítur, að svona stór skamtur af léttu víni, sem ekki komist upp úr io °/o af vínanda, hafi engin skaðleg áhrif á frumlur líkamans, og þá ekki heldur á meltingar- göngin, blóðið né taugakerfið. Ef meira víns er neytt, hverfur að dómi Pfeiffers ekki alt áfengisefnið burt úr líkamanum við melt- inguna, heldur kemst nokkur hluti þess óbreyttur inn í tauga- kerfið og önnur líffæri og fær tíma og tækifæri til að hafa skað- leg áhrif; og ef meira og meira er drukkið um langan tíma, hrúgast vínandi saman í ýmsum líffærum líkamans (Akkumula- tion af Alkohol) og leiðir af sér smátt og smátt sjúkdóm þann, sem á íslenzku mætti máske kalla ofdrykkjueitrun (ckronisk Alkoholisme). Kræpelín hallast að nokkru leyti að skoðun Pfeiffers, en álítur þó, að i pottur af víni eða i peli af brennivíni á dag sé nægilega stór skamtur til að valda ofdrykkjueitrun með tímanum. Hann segir, að áhrif hinna ýmsu tegunda áfengra drykkja séu nokkuð mismunandi. Brennivínsdrykkjan segir hann að hafi í för með sér almenna hnignun líkamans, og auk þess taugaveiklun og taugabólgu ('Nevritis), flogaveiki (Alkoholeþilepsi) og geð- veiki. Öldrykkja aftur á móti ætti fremur að valda sjúkdómum í hjarta, nýrum og æðum og sömuleiðis fitusótt (Adiþositas) og sljóvgun vitsmunanna. Víndrykkja í óhófi getur leitt af sér bæði sjúkdóma öldrykkjunnar og brennivínsins. Prófessor Quensel álítur, að algjört bindindi sé hvorki nauð- synlegt né gagnlegt, ef málið er aðeins skoðað frá heilsufræðislegu sjónarmiði einstaklingsins, og þegar um hrausta, fullorðna menn er að ræða; en frá þjóðfélagslegu sjónarmiði skoðað, segir hann,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.