Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Qupperneq 7

Eimreiðin - 01.09.1914, Qupperneq 7
mátti ég aldrei hreyfa mig. Þar var þá drenghnokkinn að malla eitt- hvað ofan í okkur, en ekki man ég hvað það var. Eitt’nvað heíir honum orðið á, því stýrimaður kom að honum eins og mannýgt naut, reif í handlegg hans, barði hann og kleip. Ég gerði skipstjóra aðvart leynilega, og fór hann upp, tók drenginn af honum, sem ekki var nema 12 ára, og atyrti stýrimann. Smith var mesta góðmenni og stiltur í lund; átti bágt með að eiga í illdeilum, en sagðist mega til við þennan mann, því hann væri mikill vargur. Þetta kom fyrir aftur og aftur, að skipstjóri varð að skerast í leikinn. — Eitt sinn braut drengur þessi 2 diska og 2 bolla, er hann var að þurka þá. Aldrei þessu vanur sagði stýrimaður ekki neitt, en kallaði á Smith og sýndi honum hrúguna, og spurði, af hvaða diskum ætti nú að borða, og á- mælti drengnum svo mikið, sem hann gat; hugsaði sér að nú skyldi skipstjóri þó einusinni leggja hendur á þann litla. En, nei, það varð ekki; hann áminti hann með stillingu um að fara varlega með leirinn svo drengurinn hætti að gráta, sem hann þó gerði oft; stundum þorn- uðu ekki af honum tár allan daginn. Mér er það í minni ennþá, hvaða svipbrigðum andlit stýrimanns tók, þegar Smith var farinn. Ég stóð við kistu mína og þóttist vera að bursta skóna mína; en reyndar var ég að veita stýrimanni eftirtekt, og Matthildur einnig. Hann varð svo grimmúðugur, var altaf að gefa okkur hornauga, sem stóðum á þilfari ekki allangt frá. Við þóttumst ekkert sjá, en sáum þó alt. Hann var að smáklípa drenginn og nísta tönnum. Við fórum þá ofan. — Svona var nú víst æfi margra skipsdrengja í þá daga, og þaðan af verri. Loks komumst við inn á höfnina, því það hvesti dálítið. Nú var farið í land. Smith, Richter og við þijár. Þegar við lentum, sáum við fólk standa úti, og einn kom ofan eftir og bauð okkur öllum heim. fað var eini kaupmaðurinn, sem til var á Patreksfirði þá, árið 1858, og hét Kristján Steinbach, maður um sextugt, snyrtimenni hið mesta og hárprúður; og svo unglegur var hann, sem fertugur væri, kátur og skemtinn með afbrigðum, svo reyndur í skóla lífsins sem hann þó var. Við komum inn í lítið anddyri; til beggja handa voru stofur, en hann bauð okkur inn til vinstri. í’ar voru ekki miklir húsmunir inni, ein dragkista, borð og rúrn í einu horninu. Stofan var lítt máluð, en afarstór var hún. Við þessar tvær, Matthildur og ég, ætluðum að fá að vera í landi alla þá stund, er skipið lægi á höfninni. Nú var að því komið, að nefna það við húsráðanda, en hvorug í þá daga kjarkmikil; þó varð ég loks að gera það, svo ég herti upp hugann og spurði Steinbach, hvort hann vildi lofa okkur að dvelja í landi þá stund, er verið væri að verzla á höfninni. Svarið var já, án umhugsunar. Við borgum eins og upp er sett, sögðum við; þá svarar hann: »Og ekki held ég það núa. Svo var ekki meira um það talað að sinni. Við sváfum í þessari stóru stofu, en sátum í stofunni til hægri handar; og þar var borðað; sú stofa var vel máluð og falleg, og þar svaf gamli maðurinn í spar- lakarúmi. Nú spurðum við, hvort við gætum ekki gert honum neitt til gagns; hann játti því, og bætti við, að nóg væri að klæðnaði sínum; en það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.