Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1914, Page 12

Eimreiðin - 01.09.1914, Page 12
haltu bara áfram, það er ekki eins leiðinlegt og ég hélt.« Því að hann var bæði raddmaður og hafði næmt söngeyra; og endirinn varð sá, að ég fór að »stemma« gítarinn eftir langspilinu hans, og hann lék á langspilið. en ég á gítarinn. Hann lék manna bezt á langspil, og er þess getið í æskuminningu minni, hvar hann lærði það. Ég tók það ekki út með sitjandi sælunni, að læra að leika á gítar; en ég segi það ekki mér til hróss, heldur til samanburðar við það, sem nú er. Nú er verið að dýrka bæði karla og konur til að læra ýmsar mentir, einnig að spila á gítar, píanó og orgel. — Ég hefi kent nokkuð mörgum á gítar, en aðeins tvær hafa nent að læra til fullnustu; og aldrei þurfti að kala á þeim hendurnar, meðan þær voru að því, því alt var þeim lagt upp í hendur, bæði hiti og ljós. Ég er viss um, að það er alt of mikið gert til að láta unga fólkið læra; því það eiga ekki aðrir að læra, en þeir, sem hafa löngun til þess. Ég ætlaði að segja frá þeirri breytingu, sem komin var á lifn- aðarhætti að ýmsu leyti. Stúlkur voru hættar að vera snöggklæddar, nfl. í skyrtu og upphlut, eins og áður var títt; en nú heyrðist ekki nefnt nema »lífstykki« með járnteinum að framanverðu. Einnig voru komin stóreflis sjöl, sem nærri hver stúlka átti, og gekk með »slegið« í kirkjuna. Hættar voru þær alveg að hafa klút í gjörð í kirkju, en í stað þess höfðu þær skotthúfu. Nú sómdi það vel, að hafa skotthúfu í kirkju; en svo mikla tign var hún ennþá ekki komin í, að hún kæmist inn að altarinu. í stað þess, að hafa klút í gjörð, þegar til altaris var gengið, voru nú komnir kjólar og dinglandi silkibönd í hnakkanum, frá Guðbrandi. Ekki voru nú handlínur nefndar á nafn, heldur hét það nú vasaklútur, og var hann nú brotinn saman, og haldið á honum í hendinni, því það þótti fínna. Stígvélaskó á fótum höfðu þær ekki, því þeir fengust ekki hjá Guðbrandi, og urðu þær að hafa íslenzka skó, þó lítt væri þeir notandi í svona ferðir nú orðið. Margar konur héldu enn við upphlutinn. og af þeim var móðir mín ein. Hætt var að steypa hnappa og búa til krókapör á hverjum bæ, sem áður var altítt, — því það fékst hjá Guðbrandi og var miklu »billegra«, sögðu menn. Vefnaðinum var þó haldið áfram, þó minna en fyr. Móðir mín spann og lét spinna, eins og áður. A matarræði var lítil breyting, nema kaffi var nú drukkið töluvert meira og brenni- vín var alstaðar, því það var svo hægt að fá það; þá var ekki farið að stemma stigu fyrir ofdrykkjunni, enda sáust þess merki, þegar menn gátu fengið i pott af brennivíni fyrir 12 skildinga (=25 aura), og eftir þessu man ég. En af hverju stafaði nú þessi breyting? Faðir minn verzlaði á sama stað í mörg ár, og engin breyting varð á lifnaðarháttum. En hann verzlaði einungis með þarfa hluti, sem var: rúgur, mjöl, banka- bygg, kaffi og sykur. En í pöllunum sást aldrei annað en hvít léreft, »sirts«, svuntudúkar og léreftsklútar, dálítið af klæði, svörtu og grænu, og bekkjóttum silkiklútum. Þá mátti aldrei vanta. Af glingri hafði hann ekki annað en gylta hnappa, sem voru dýrir að hafa í karl- mannsklæðnað, vasahnífa, smáar »spulkomur«, tin- og leirdiska. Ég má

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.