Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Blaðsíða 26
26
l’orv. Thoroddsen
aö yfir 6000 plöntutegundum í Ameríku og af þeim var
helmingurinn algjörlega nýr fyrir vísindin1); bætti Hum-
boldt við lýsingarnar allskonar fróöleik um útbreiðslu
jurtanna, notkun, o. fl. Af öðrum deildum ferðabókarinn-
ar má ennfremur nefna sjálfa ferðasöguna, 3 bindi, hún
átti að verða 4, en síðasta bindið kom aldrei, lýsing á
Mexicó 2 bindi, myndir og lýsingar úr Andesfjöllum,
korta og mælingasafn, athuganir um dýrafræði tvö bindi,
stjarnfræðismælingar 2 bindi, rannsóknir er snerta upp-
götvunarsögu Ameríku 5 bindi í 8vo; það er ákaflega
fróðlegt rit samið með miklum lærdómi, varð það hvöt
fyrir marga síðar að rannsaka nánar landfraeðissögu Ame-
ríku. Meðan þetta mikla ritsafn var í smíðum, mátti heita
að nýjar vísindagreinar sköpuðust í heila Humboldts.
Pá lagði hann grundvöllinn undir »plöntugeografíuna«,
sem síðar er orðin mikil og merkileg vísindagrein og má
*) A. Bonpland. samferðamaður og vinur Humboldts, samdi sumt
af grasafræðisritum þessum, en honum ljet síður að semja vísindaleg rit,
heldur en að safna og ferðast, hann var tómlátur og varð lítið úr verki,
varð því minna úr honum en Humboldt hafði búist við. Mest af grasa-
fræðisritunum er eftir C. S. Kunth, sem var ágætur grasafræðingur.
Bonpland varð síðar forstöðumaður grasgarðsins í Malmaison og varð
mjög handgenginn Josefine keisaradrotningu, en er hún dó 30. maí 1814,
undi hann eigi lengur í Európu, en fór 1816 til Buenos Aires og var
þar um tíma háskólakennari. Fór hann þaðan ýmsar rannsóknarferðir
og á einni þeirra ljet Dr. Francia, sem var einvaldur í Paraguay og
mesti harðstjóri, 1821 liðsmenn sína ráðast á hann, voru fylgdarmenn
Bonplands drepnir og hann sjálfur særður, handtekinn og settur í fjötra,
var hann hafður í varðhaldi í Paraguay í 9 ár þrátt fyrir bænir og hót-
anir Frakka og Englendinga, en loks var honum slept 1830, ekki fór
hann samt aftur til Európu, þó honum væri boðin góð boð; hann gat
ekki slitið sig frá hinum suðræna jurtagróðri. Settist Bonpland síðan að
á takmörkum ríkisins Uruguay og Brasilíu og fekst við læknisstörf, því
hann hafði upprunalega verið læknir, og lítilsháttar við búskap, lenti í
basli og hálfgerðri fátækt og forpokaðist algjörlega að lokum. Bonpland
andaðist 85 ára gamall í argentinska fylkinu Corrientes 11. maí 1858.