Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Blaðsíða 175
frír Svíar
75
ars alþýðlega fyrirlestra nm breytingar í málinu (»Om sprákets
förándring«), voru þeir gefnir út 1896 og aftur 1908, og er
mjög fróðleg og skemtileg bók (líka þýdd á dönsku, og ætti
skilið að koma á íslensku). Hann gaf — ásamt með C. af
Petersens — út málsháttasafnið gamla, sem kent er við Pjetur
Lále, með mjög góðum skýringum. Og hann hefur verið
ritstjóri Arkivs for (för) nordisk filologi, (sem hefur flutt svo
margar og ágætar ritgjörðir ekki síst eftir hann sjálfan), nú í
30 ár (gefið út 30 árganga, en Gustav Storm gaf út þá
fyrstu 4) og gert það mjög samviskusamlega og röggsamlega.
Kock hefur og ritað upprunaskýrandi ritgjörðir um orð
og nöfn og margt þess kyns.
Meðal norrænna málfræðinga verður nafn A. Kocks ætíð
talið með þeim bestu og frægustu.
Adolf Noreeil. Adolf (fullu nafni: Adolf Gotthard)
Noreen er fæddur 13. mars 1854 og er Vermlendingur,
stúdent 1871 og dósent í Uppsölum 1877, prófessor 10 ár-
um síðar samastaðar í norrænum málum. Noreen er annar
frægastur málfræðingur í eiginlegri merkingu orðsins með
Svíum og hefur ritað mörg rit stærri og smærri og ótal minni
ritgjörða, mestalt um hljóð málsins og orðmyndir og lítið eitt
farið út fyrir það svið. Aftur hjer skiftast ritin um sænskt
mál og fornnorrænt. Hin elstu rit hans eru um ýmsar sænsk-
ar mállýskur, frægar ritgjörðir. (Fryksdalsmálet 1877 o. fl.).
Bæði hljóðfræði og málmyndalýsing lætur hann sjer jafnant
um, og eitt af hans elstu ritum er hin sfornnorska og forn-
íslenska málfræði«, er út er komin í 3 útgáfum og samin á
þýsku; 1. útgáfan kom 1884. Wimmer haiði samið mjög
svo fullkomna málmyndalýsing, og kom hún út á sænsku 10
árum áður (1874); þar er hljóðfræðin stutt og laggóð eftir
því sem þá gerðist. En það var einmitt hljóðfræðin, sem
mestum framförum tók og stakkaskiftum eftirleiðis. Því hefur
Noreen látið sjer sjerlega ant um þennan þáttinn og sam-
ið hann frá rótum, og hefur hann stöðugt orðið fyllri við
hverja nýja útgáfu, málmyndalýsingin sjálf gat ekki tekið svo
miklum umbótum, af því að hún var í svo góðu lagi áður.
Þessi bók er ómissandi hverjum norrænumálfræðingi. Aftan
við hana eru allar helstu rúnaletranir trá elsta rúnatímabilinu
með skýringum. Noreen hefur og samið bók um hina elstu
germönsku hljóðfræði (líka á þýsku: Urgermanische lautlehre
1894) og samið ssögu norrænna mála« (Geschichte der
nordischen sprachen) í hinu mikla þýska safnriti »Grundriss
der germanischen philologie«, nú í 3 útgáfu.