Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1982, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1982, Page 27
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR19. JONl 1982. 27 Ijósmyndarinn, Johannes Lange. Fangamir i CokUzt vörðu miklum tima i að sauma fatnaö handa væntanlegum flóttamönnum. Saumavólin var lika smíðuð á staðnum og að mestu úr tré. Leyfi fyrir henni fékkst undir þvi yfirskini að saumavólin yrði notuð tilað gera búninga fyrir leiksýningar fang- anna. Mikil hugkvæmni kom fram i saumaskapnum — t.d. voru gylltir hnappar hermannafrakkanna gerð- ir úr bræddu látúni sem sagað var úr pipulögnum kastalans og úr bræddum grammófónplötum, beltí voru gerð úr gólfdúk, lituðum með skósvertu og gullmerki og legging- arnar <ir rafmagnsvírum Fangarnir i Coldizt voru i stöðugri leitað hlutum, sem brúka mætti við flóttann. Þeir mútuðu vörðum eða bara stálu öllu steini léttara. Einu sinni stal hópur enskra fanga þriðjaparti úr stiga af þýzkum verkamanni, sem var að lagfæra glugga kastalans. Þeir komu verka- manninum á kjaftatörn og á meðan söguðu félagar þeirra hluta af stiganum og komu honum undan. En á þessum myndum má sjá hitt og þetta sem fangarnir unnu við: landakort voru falin í tvinnakeflum eða i spilum, herðatró voru holuð að innan til að geyma pappíra, lyklar gerðir úr handföngum af vatnsfötum, fölsuð vegabróf falin I taflborOio.fi. Colditz-kastalinn gnæfir hátt yfir samnefndu þorpinu. Meðal fyrstu flóttatilraunanna þaðan var fífídjörf tilraun tveggja Pólverja i mai 1941. Þeir komust í geymsluherbergi i risi kastalans og lögðu af stað niður kastalaveggina á heimatilbúnu reipi um hábjartan dag og i augsýn allra þorpsbúa. Athyglin sem þeir vöktu varð þó til þess að verðirnir sáu Pólverjana og skutu þá niður. Á myndinni sést gluggi herbergisins sem þeir fóru út um en pilan sýnir hvar þeir urðu fyrir skotum Þjóðverjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.