Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Blaðsíða 5
DV.MÁNUDAGUR 4. JUNl 1984.
5
UmlOOmanns
í vinnu við
fíugstöðina
— steypuvinna er þegar haf in
Vinna er hafin við annan áfanga nýju
flugstöðvarbyggingarinnar á Kefla-
víkurflugvelli. í honum felst öll steypu-
vinna við húsið og verður þá lokafrá-
gangur þess einn eftir.
Reiknað er með að þessi annar áfangi
taki um átján mánuði í framkvæmd og
munu um 100 manns vinna að verkinu
þegar mest verður. Þrjátíu manna hópur
starfar nú við undirbúningsvinnu.
Fyrirtækið ístak hefur umsjón með
þessum áfanga flugstöðvarbyggingar-
innar en samningur þess við utanríkis-
ráðuneytið hljóðar upp á 206 milljónir
króna.
EA
JÓHANNA HÆTTIR
MÓTMÆLASVELTI
Viö Norðurá í Borgarfirði þar sem veiðst hafa 27 laxar. Á minni myndinni er Halldór Þórðarson með fallegan iax sem
hann veiddi fyrsta veiðidaginn. DV myndir G. Bender.
Jóhanna Tryggvadóttir hefur hætt
hungurverkfalli sínu.
„Mér er búið að líða hroðalega. Ég er
búin að vera 62 sólarhringa í mótmæla-
sveltiý sagði Jóhanna í samtali við DV í
gær.
í þessu níu vikna svelti sínu kvaðst
hún einungis hafa neytt vatns með ör-
lítilli mjólk út í.
„Ég hef reynt að vekja athygli á mál-
staðnumý sagði Jóhanna, sem með að-
gerð sinni var að mótmæla því að
borgaryfirvöld skyldu hafa fellt niður
framlag til Heilsuræktarinnar í Glæsi-
bæ sem hún stýrir. Ennfremur var Jó-
hanna að mótmæla því að fyrirtækinu
væri gert ókleift að reisa hús eftir teikn-
ingu Alvars Aalto á lóð á horni Sigtúns
og Kringlumýrarbrautar.
Jóhanna kvaðst ekki hætt baráttu
sinni. Hún sagði að undirskriftasöfnun
væri farin af stað. -KMU.
Enginn fískur
á Lækjartorgi
„Við höfum verið að basla við það svo vatnsrennsli og ólykt sem ég held að
Laxveiðin f er vel af stað:
Hafa veitt 27 í Norðurá
Hin góða byrjun í veiðinni kætir
stangveiðimenn og gefur vonir um
mjög gott veiðisumar. Fyrstu dagarnir
hafa gefið vel í Laxá á Ásum og
Norðurá í Borgarfirði þar sem við leit-
uðum frétta í gærdag.
„Mjög góð byrjun, komnir á land
14 laxar og er veitt á tvær stangir,"
sagði Kristján Sigfússon á Húnastöð-
um. „Sá stærsti sem kominn er á
land var 12 pund og hann veiddi
Aðalsteinn Jónsson hjá Sjöfn á Akur-
eyri. Eitthvað hafa veiðimenn séð af
laxi“
„Það veiddust 27 laxar 1 opnuninni,
sem er mjög gott, í fyrra veiddust 2
laxar,“ sagði Ólafur G. Karlsson, for-
maður Stangaveiðifélags Reykjavikur,
í veiðihúsinu við Norðurá. En það
hefur verið vaninn í gegnum tíðina að
stjórn félagsins veiði alltaf fyrstu dag-
ana. „Vegna þess að hlýtt var og svo
hefur rignt innfrá varð næstum óveið-
andi í ánni á öðrum degi. Þá fengust
aðeins 4 laxar og svo veiddust 2 laxar
í morgun. Hún er mórauð, áin. Hann
var 12 punda sá stærsti sem veiðst
hefur,“ sagði Ólafur í lokin.
G. Bender.
Óvenjuleg afmælisveisla:
árum skiptir að koma öllum matvæla-
viðskiptum undir þak og loks þegar það
fer að bera árangur þá vilja allir rjúka
með vörur sínar út á götu“ sagði Oddur
R. Hjartarson, framkvæmdastjóri Heil-
brigðiseftirlitsins, aðspurður um erindi
fisksala eins sem sótt hafði um leyfi til
að fá að selja fisk á Lækjartorgi. Erindi
þess eðlis barst frá skrifstofu borgar-
stjóra og eftir umfjöllun í heilbrigðis-
ráði var því hafnað.
„Fisksalinn ætlaði að selja ferskan
fisk úr sölutjaldi og slíku fylgir bæði
Vínveitingar
á Hótel Hofi
Hótel Hofi hefur verið veitt vínveit-
ingaleyfi og samfara því hefur af-
greiðslutíma verið breytt í nýinnrétt-
uðum veitingasal hótelsins. Hann er nú
opinn daglega frá kl. 8 til kl. 23 daglega.
Nýlega var komið fyrir leikkrók fyrir
börn í matsalnum en fríar veitingar eru
fyrir börn yngri en 6 ára og hálft gjald
fyrir börn 6—12 ára. -FRI
Tvær bílveltur
TVær bílveltur urðu í nágrenni borgar-
innar í fyrrinótt, önnur við Háls í Kjós,
á blindhæð, en hin við Leirvogsá á
Kjalarnesi.
Meiðsli á fólki í þessum veltum voru
minniháttar en bílarnir eru töluvert
skemmdir. -FRI
Ashkenasy
kemur9.júní
Vladimir Ashkenasy er væntanlegur
til landsins 9. júní næstkomandi. Hann
kemur hingað frá París til að stjórna Fíl-
harmóníuhljómsveit Lundúna á tvenn-
um tónleikum sem haldnir verða í
Laugardalshöll á vegum listahátíðar
dagana 9. og 10. júní. Ashkenasy mun
spila með hljómsveitinni á fyrri tónleik-
unum en sonur hans, Stefán, leikur ein-
leik á þéini síðári." " " " * 'EÁ”
ekki myndi bæta bæjarbraginn mikiðý
sagði Oddur og bætti því við að þetta
væri líklega í fyrsta skipti sem umsókn
um leyfi til fisksölu á Lækjartorgi hefði
borist yfirvöldum. -EIR
15 SYSTKINIÞÚSUND ÁRA
Haldið var upp á óvenjulegt afmæli í
höfuðborginni á laugardaginn.
Það voru samtals 13 systkini sem
héldu upp á samanlagt 1000 ára afmæli
sitt.
Systkinin, sem eru flest búsett á
höfuðborgarsvæðinu, höfðu látið
reikna út sameiginlegan árafjölda sinn
og á laugardaginn stóð það upp á dag að
þau voru samtals 1000 ára. Árafjöldinn
var reiknaður út með aðstoð tölvu.
w HlllllllllllllllllllimilllMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIII II11111111111111111111 llllllllllllllltllllll Biiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimmimi 11111111111111IIIIIIMMMIIIMMIMIIIIMMIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIMMIIMI111111111111111111111111 Mlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllfllllllllllllllll BELLARIUM
1 BELLARUJM-S UV ljósaperur — 80 og 100 W.
la SA1-12-100W ( SYSTEM ) 20 mín. eða 30 mín.
Made in W. - Germany \ / fyrir allar tegundir sólbekkja.
j^iiiiMiiiiiimiiiimiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiniiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiMii sæs Hagstætt verð. 'iiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiii
PALL STEFANSSON!
UMBOÐS & HEILDVERZLUN 1
BLIKAHÓLUM 12, R.VÍK
SÍMI (91)-72530 |
...
SarnafH þakdúkur
á Norðurlandahúsinu í Færeyjum
• Torfþökerugömuloggróinhefðhjá frændum vorumi Færcyjunt.
• Við lögðum 2000 fermetra af Sarnafil-þakdúki undir torf á hið glæsilega Norð-
urlandahús í Færeyjum.
• Við höfunt lagt yfir 60.000 fermetra af Sarnafil-þakdúki undanfarin þrjú ár.
• Þetta svarar til 10 einbýlishúsa á mánuði að jafnaði.
• Sarnafil er skrúfað niður, heillímt eða lagt laust undir farg til dæmis úr möl,
torfi eða hellum.
Þrjár góðar ástæður til að þú hafir líka sam-
band við Fagtún hf. þegar þú byggir, endur-
nýjar eða selur:
II
Fagtún selur og gengur frá Sarnafil-þakdúki og hefur náð fullkomn-
um tökum á lausn allra helstu vandamála við flöt þök á íslandi.
Fagtún gerír úttekt á þakinu þínu og síðan sundurliðað tilboð þér
að kostnaðarlausu.
Fagtún, ásamt norskum framleiðanda Sarnafil-dúksins og íslensku
tryggingarfélagi gefur þér ábyrgð á efni og vinnu við þakið, sem
gildir í 10 ár.
Ef þú ert að selja fylgir ábyrgðin til hins nýja eiganda. Þú getur
lika selt verksamning við okkur með húsinu.
Nýttu þér okkar reynslu — það borgar sig!
fagtun
FAGTÚN HF, LÁGMÚLA 7, 105 REYKJAVÍK, SÍMI 28230