Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Side 8
8
DV.MANUDAGUR 4. JUNI1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Pastora segir ásakanir
Sovétmanna hlægilegar
Eden Pastora, skæruliðaforinginn
kunni frá Nicaragua, sagði um helg-
ina að sprengja sú sem særði hann
á fréttamannafundi hans í síðustu
viku gæti átt rætur sínar að rekja til
hægri- eða vinstrisinnaðra öfga-
manna.
Pastora, sem nú liggur á sjúkra-
húsi í Venezuela, sagði að ásakanir
Sovétmanna um að það væri banda-
ríska leyniþjónustan CIA sem stæði
á bak við sprenginguna væru hlægi-
legar.
Sprengingin, sem varð á frétta-
mannafundi Pastora, sem haldinn
var innan landamæra Nicaragua síð-
astliðinn miðvikudag, varð fimm
mönnum að bana og særði 28.
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hefur neitað því að CIA
hafi staðið á bak við sprenginguna.
Sovétmenn sögðu að CIA hefði
komið sprengjunni fyrir vegna þess
að Pastora hefði neitað að hlýðnast
skipunum Bandaríkjamanna.
Pastora hefur barist gegn sandin-
istastjórninni í Nicaragua og hafa
skæruliðar hans sótt inn yfir landa-
mæri Nicaragua frá Costa Rica.
Yfirvöld í Eþíópíu hafa lýst yfir
því að Eþíópía muni ekki taka
þátt í ólympíuleikunum í Los
Angeles. Eþíópía, sem lýtur marx-
ískri stjórn, er fyrsta Afríkuríkið
sem tekið hefur slíka ákvörðun og
fylgir þannig fordæmi Sovét-
manna. Er þetta bagalegt fyrir
keppnina því að margir af bestu
langhlaupurum heims eru frá Eþí-
ópíu. Engar skýringar voru gefnar
á þessari ákvörðun.
Skæruliðar er njóta stuðnings
Bandaríkjanna hafa hins vegar haft
búðir sínar í Hondúras. Pastora hef-
Öll austantjaldsríkin, að Rúm-
eníu og Júgóslavíu undanskildum,
hafa lýst því yfir að þau muni ekki
sækja ólympíuleikana. Auk þess
hafa Kúba, Víetnam, Afganistan,
Suður-Yemen og Mongólía lýst
því sama yfir.
Sovétmenn studdu ákvörðun
sína þeim rökum að öryggi íþrótta-
fólks þeirra væri ekki nægilega
tryggt en Bandaríkjamenn segja
ur skýrt frá því að hann hafi verið
undir þrýstingi um að ganga í lið
með skæruliðunum í Hondúras.
hins vegar að þeir séu að hefna sín
vegna þess að Bandaríkjamenn
tóku ekki þátt í ólympíuleikunum
í Moskvu árið 1980.
Þá skýrði ríkisstjórn Bólivíu frá
því í gær að hún myndi ekki senda
lið á ólympíuleikana í ár vegna
bágborins efnahagsástands.
Ólympíunefnd Bólivíu hafði fyrir-
hugað að senda 22 frjálsíþrótta-
menn á ólympíuleikana.
Eþíópía og Bolivía ekki með
á ólympíuleikunum
ÞJORSARDAL
8. til 10. júní
3 DANSLEIKIR
Hljómsveitirnar Mánar, Pardus og Lótus leika fyrir dansi
föstudag, laugardag ogsunnudag kl. 21.00 til 03.00.
Laugardagur: Kl. 14.00 Break danskeppni, Diskótek o. fl.
Sunnudagur: Kl. 14.00 Hátíðardagskrá,Break danssýning,
hátíðarræða: Árni Johnsen alþm., helgistund, hljómleikar o. fl.
Diskótek alla helgina.
Sætaferðir frá BSÍ, Rvík: Sætaferðir frá Selfossi:
Föstudag kl. 16, 18.30 og 20.30. Föstudag kl. 17, 19.30 og 21.30.
Laugardag kl. 10.30, 14 og 21.00. Laugardag kl. 11.30, 15 og 22.00.
Sunnudag kl. 21.00. Sunnudag kl. 22.00.
lesse
Jackson
ætlarað
hitta
Castro
Jesse Jackson, frambjóðandi I
forkosningum demókrata til forseta-
kjörs í Bandaríkjunum, kveðst
munu hitta Fidel Castro, forseta
Kúbu, innan tíðar. Lýsti Jackson
þessu yfir á blaðamannafundi sem
hann boðaði til í gær. Jackson kvaðst
ekki geta sagt nákvæmlega til um
hvenær hann færi til Kúbu en það
yrði sennilega í lok þessa mánaðar.
Hann sagði að Castro hefði átt frum-
kvæðið að fundinum og boðið sér til
Kúbu.
Jackson sagði að hann mundi ræða
við Castro um slæm samskipti
Bandaríkjanna og Kúbu, ástandið í
Mið-Ameríku og málefni pólitískra
fanga á Kúbu.
Með Jackson á blaðamannafund-
inum var Ramon Sanchez Parodi
sem starfsmaður stofnunar sem sér
um að kynna málefni Kúbu í Banda-
ríkjunum.
Nimeiri,
forseti
Súdan,
hótar
Jaafar Nimeiri, forseti Súdans,
hefur sakað útlend sendiráð og
stofnanir um að smygla áfengi inn í
Súdan. Segist hann munu grípa til
alvarlegra aðgerða ef framhald verði
á slíku. Það var Suna, hin opinbera
súdanska fréttastofa, sem skýrði frá
þessu um helgina.
Fréttastofan hafði það eftir Nim-
eiri að ónefndar þjóðir væru „að
gera okkur óleik með því að senda
áfengi til ýmissa sendiráða í Súdan.“
Suna skýrði einnig frá því að
sendiráð ítalfu, sendimaður Vatík-
ansins og fleiri erlend sendiráð hefðu
mótmælt því að rómversk-kaþólskur
prestur var húðstrýktur í síðustu
viku fyrir að hafa brotið gegn
fslömskum lögum með því að hafa
áfengi í fórum sínum.
Presturinn, séra Manara Joseph,
fékk þrjátíu vandarhögg, auk þess
sem hann var dæmdur í þrjátíu daga
fangelsi og 600 doliara seíct fyrir að
hafa undir höndum eina flösku af
viskíi, sextán flöskur af léttu víni og
einn kassa af bjór.
Reagan
viður-
kenndi
mistöká
írlandi
Reagan Bandaríkjaforseti viður-
kenndi á laugardaginn að stjóm hans
hefðu orðið á mistök í utanríkispóli-
tík sinni en í heild sinni hefði stefnan
verið til fyrirmyndar.
Reagan varði stefnu stjómar sinn-
ar þar sem hann var staddur í
Galway. Samtímis fóm um 1500
manns þar í mótmælagöngu gegn
heimsókn Reagans og í þeim hópi
vom margir rómversk-kaþólskir
prestar og nunnur.
Hann lýsti því yfir að Bandaríkja-
menn gerðu allt sem í þeirra valdi
stæði til að komast hjá kjarnorku-
styrjöld.
„Stundum hafa okkur orðið á
mistök, eins og eðlilegt er með allar
mannlegar athafnir, en þrátt fyrir
það held ég að f heild hafi frammi-
staða Bandarfkjanna verið til fyrir-
myndar,“ sagði Reagan.
Útlönd