Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Side 10
rr
10
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Afkomendur ástralskra frumbyggja. Þeir hafa löngum staðið höllum
fœti gagnvart hinum hvitu innflytjendum en nú stefnir i að Ástralia
verði „e vróasisk' ‘ þjóð.
Ástralíumenn
deila um inn-
flytjendamál
Astralía er í auknum mæli tekin aö Astralíumenn allt annað en ánægöir.
opna dyr sínar fyrir innflytjendum
frá Asíu og hefur þaö valdiö miklum
deilum meöal Astralíumanna þvi
ekki eru mörg ár síðan innflytjendur
voru nær einungis hvítir á hörund.
Um þriöjungur þeirra 70 þúsund
manna sem árlega setjast aö í
Astraliu eru Asíumenn og sýnist sitt
hverjum um mál þetta. Hefur það
meðal annars valdiö miklum deilum
í þingi landsins.
Asíumenn eru nú aðeins um tvö
prósent af íbúum Astraliu en þaö
hlutfall hefur fariö hækkandi aö und-
anfömu. Miklu veldur þar um að sá
aúkni f jöldi af Víetnömum sem þeg-
ar er í landinu kallar á og beitir sér
fyrir flutningi ættingja ög vina frá
Víetnam.
Umræður um málið hafa oröiö svo
haröar í ástralska þinginu að undan-
föfnu aö sem dæmi má nefna aö
Lewis Kent, þingmaöur
Verkamannaflokksins, sem fer meö
stjóm landsins, kallaöi þingmenn
stjórnarandstööunnar kynþáttahat-
ara fyrir að vilja fleiri innflytjendur
frá Evrópu á kostnaö innflytjenda
fráAsíu.
Viðkvæm mál
Innflytjendamál hafa ætíð verið
viðkvæm í Astraiíu þar sem breskir
og evrópskir landnemar settust að
fyrir 200 árum og um aldamótin var
ríkjandi stefnan „einungis hvítir” i
þeim málaflokki. Innflutningnum
varstjómaömeölögumfrá 1901 um
að innflytjendur yröu aö standast
staf setningarpróf í ensku. Fór svo aö
Asíumönnum reyndist þetta próf af-
skapiega erfitt og áriö 1907 stóðst
enginn Asíumaöurprófiö.
Eftir síöari heimsstyrjöldina var
Evrópumönnum enn hampaö á
kostnaö Asíumanna. Arthur Calwell,
þáverandi innflytjendamálaráö-
herra, lagði til að Asíumenn sem fyr-
ir væru í landinu yröu fluttir á brott.
En Bretar þurftu aöeins aö greiöa tíu
sterlingspund fyrir fimm vikna sigl-
ingu til aöhef ja nýtt líf í Astralíu.
Fyrstu umtalsverðu breytingamar
í þessum efnum komu ekki fyrr en
1964 er öörum en Evrópumönnum
var heimilaö aö setjást að í landinu.
A árunum 1975 til 1982 komu 90 þús-
und innflytjendur fráSuðaustur-Asíu
til Astralíu, langflestir þeirra frá
Víetnam.
Meö þessa þróun eru margir
Þar á meðal er „hreyfing hinnar
hvítu Astralíu”.
Minnkandi tekjur
„Asiufólk á brott” hefur veriö
krotaö á veggi víðs vegar um landiö.
Einkum era slikar áletranir fyrir-
ferðarmiklar við háskólann í New
South Wales þar sem mörgum
nemenda þykir sem of mörg sæti
komi í hlut nemenda af asískum
upprana.
Höfuöröksemdirnar hafa þó á liön-
um árum verið aö tekjur í landinu
hafi farið minnkandi og er svo komið
aö Astralíumenn ráöleggja þeim inn-
flytjendum sem kvarta aö snúa
heim, jafnvel þótt þeir séu Bretar.
Hinar skiptu skoðanir til þessara
mála komu vel fram í fyrirlestri sem
Geoffrey Blainey, virtur sagnfræð-
ingur viö háskólann í Melbourne,
flutti nýverið. Blainey er formaöur
kínversk-ástralska félagsins og hef-
ur veriö þekktur fyrir allt annað en
kynþáttahatur. Hann sagði að hraö-
inn á innflutningi Asíumanna til
Astralíu væri nú mun meiri en al-
menningur í landinu teldi heppilegt.
„Forréttindahópur"
„Sjaldan í sögu nútímans hefur
þjóð veitt litlum minnihlutakynþætti
íbúanna slíkan forgang eins og st jórn
Astralíu hefur gert á síðastliðnum
árum. Minnihlutahópurinn hefur
oröiö forréttindahópur í innflytj-
endamálum,” sagöi Blainey.
Ræða hans kom af stað miklum
blaöadeilum svo og umræðum í út-
varpi og sjónvarpi um réttlæti núver-
andi stefnu ástralskra stjómvalda.
Skoðanakönnun sem framkvæmd
var nýveriö sýnir aö 62 prósent
Astralíumanna telja innflutning
Asíumanna vera of öran.
Hlutfall Asíumanna í hópi innflytj-
enda hefur á síðustu fimm árum
hækkaö úr 29,4 prósent í 33,2 prósent.
Stjórnarandstaðan ætlar aö gera inn-
flytjendamálin aö einu sínu helsta
kosningamáli í kosningunum sem
fyrirhugaöar era í febrúar á næsta
ári. Telur enda aö meirihluti þjóöar-
innar sé sama sinnis og hún í þeim
málum.
Verkamannaflokkurinn sýnir þess
hins vegar engin merki aö honum sé
aö snúast hugur. „Eg tel það óhjá-
kvæmilegt aö Astralía verði evróas-
ísk þjóö,” sagði Bill Hayden utan-
ríkisráöherra nýverið.
Peres. Staða hans hefur styrkst að
undanförnu.
Þótt enn séu tæpir tveir mánuöir í
kosningamar í Israel þá viröist þegar
stefna í aö Verkamannaflokkurinn
undir forystu Simon Peres muni fara
meö sigur af hólmi og því megi reikna
meö stjómarskiptum í Israel í sumar.
Peres, sem fram að þessu hefur yfir-
leitt þótt heldur litlaus leiötogi, hefur
að undanförnu hækkaö talsvert í áliti
eftir nokkra vel útfæröa leiki á skák-
boröi stjómmálanna. Hann hefur sóst
eftir hylli gyöinga frá Marokkó sem
fram til þessa hafa veitt Likud-banda-
laginu mikilvægan stuðning. Honum
Iiefur tekist að koma á einingu og aga í
flokki sínum semá undanförnum áram
hefur einkennst af sundurlyndi og
sundrungu. Þá hefur honum tekist aö
fá ýmsa gamalkunna stjórnmálafor-
ingja Verkamannaflokksins til aö taka
á ný sæti á Iista flokksins og kann þaö
að reynast honum ómetanlegt í þeim
slag sem fram undan er. Þar á meöal
er Yitzhak Navon, fyrrum forseti
Shamir forsætisráðherra á í vök að verjast.
landsins og sagöur vinsælasti stjórn-
málamaöur Israels um þessar mundir,
Yitzhak Rabin, fyrram forsætisráð-
herra, og Abba Eban, fyrrum utan-
rikisráöherra.
Skoðanakannanir
Síöustu skoðanakannanir gefa til
kynna aö Verkamannaflokkurinn gæti
hlotiö 55 þingsæti af 120 í Knesset, 10 til
12 þingsæti umfram Likud-bandalagiö.
Meö aðstoð smáflokka á vinstri vængn-
um ætti Verkamannaflokknum því
ekki að verða skotaskuld úr því aö ná
þingmeirihluta og mynda ríkisstjóm.
Þaö var skrautf jööur í hatt Peresar
er hann átti stóran þátt í aö koma á
þingi gyðinga í Marokkó á dögunum.
Þing þetta sóttu gyðingar víös vegar
aö úr heiminum og hlutu góðar móttök-
ur hjá stjórnvöldum í Marokkó. Þaö
var aö sjálfsögöu sögulegur atburöur í
ljósi þess að formlega á Marokkó enn í
stríöi viö Israel. Frá Israel kom 35
manna sendinefnd til þingsins og fyrir
nefndinni voru níu þingmenn. Sjö
þeirra voru úr Verkamannaflokknum.
Þessi mikla þátttaka Verkamanna-
flokksins í þinginu var ekki tilviljun
því aö Peres hefur um nokkurt skeiö
staöið í vinsamlegum bréfaskiptum
viö Hassan konung í Marokkó.
Shamir í vörn
Shamir forsætisráöherra hefur á
hinn bóginn átt í vök að verjast aö und-
anfömu. Hann þykir engan veginn eins
heillandi persónuleiki og Begin, fyrir-
rennari hans. Hann mátti hafa sig all-
an við aö halda formennskunni í Herut-
flokknum þar sem mótframboö kom
fram frá Ariel Sharon, hinum um-
deilda fyrrverandi varnarmálaráö-
herra landsins. Þá hefur Herut-
flokkurinn átt í samstarfsörðugleikum
viö Frjálslynda flokkinn, samstarfs-
flokk sinn í Likud-bandalaginu. Þá
heldur veröbólgan áfram aö geisa og
síðustu tölur yfir hana benda til aö
verðbólguhraöinn sé nú yfir 400 pró-
sent á ári.
Þá hefurafhjúpunísraelskra hryðju-
verkasamtaka oröiö til að auka á
erfiöleika Shamirs vegna þess aö
stjórn hans hefur löngum neitaö því aö
slík samtök væru til í Israel. Sömuleiö-
is sú niöurstaöa opinberrar rann-
sóknarnefndar aö ísraelskir hermenn
. hafi bariö til bana tvo af palestínsku
skæruliöunum er rændu strætisvagni í
síöastliönum mánuöi og tóku farþega
hans í gíslingu. Fréttabann sem stjórn-
völd beittu í upphafi þessa máls hefur
ekki oröiö til þess aö fegra( ásjónu
Likud-bandalagsins.
Kosið 23. júlí
Enn er vafalaust of snemmt fyrir
Verkamannaflokkinn aö fagna sigri í
kosningunum 23. júlí. Bent hefur veriö
á aö flokkurinn þurfi aö bæta við sig
250 þúsund atkvæöum frá kosningun-
um 1981 til aö tryggja sér völdin.
Líbanonmálið mun vafalaust koma
mjög við sögu í kosningabaráttunni.
Verkamannaflokkurinn studdi innrás-
ina þar í upphafi og Likud-bandalagið
gæti slegiö sér upp á því aö kalla ísra-
elska herliöiö heim frá Líbanon fyrir
kosningar. Þá er staöa Verkamanna-
flokksins ekki of sterk í Palestínumál-
inu. Flokkurinn hefur lýst sig fúsan til
aö láta „hluta af vesturbakkanum” í
skiptum fyrir friö. En Hussein
Jórdaníukonungur hefur þráfaldlega
hafnaöþví boöi.
Israelsmenn hafa á stundum fengiö
á sig orö fyrir að kjósa frekar menn en
málefni og þar stendur Verkamanna-
flokkurinn sennilega betur að vígi en
Likud-bandalagið, einkum vegna þess
að Begins nýtur ekki lengur viö í bar-
áttunni og Shamir skortir persónutöfra
hans.
STJÓRNARSKIPTI
, SENNILEG í
ISRAEL í SUMAR
Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson