Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Page 16
16
DY.MÁNUDAGUB4.J0NI 1984.
Spurningin
Hvernig á að bregðast við
vanda Lánasjóðs íslenskra
námsmanna?
Grétar Guömundsson kennari: Hækka
framlag tilsjóösins.
Ásta B. Karlsdóttir, vinnur á póstgíró-
stofu: Ég er ekki á því aö námsmenn
eigi að fá öll þessi lán. Þau eru veitt í
alltof mörgum tilfellum.
Vilhelm Júlíusson hjá Flugmála-
stjórn: Þetta er vandasöm spurning.
Ég held aö réttast væri aö lána náms-
mönnum upphæð sem jafnast á við lág-
markslaun.
Hallgrímur Þorsteinsson öryrki: Þaö á
aö láta námsmenn fá þaö sem þeir
þurfa. -
Kristín Donaldsdóttir nemi: Það á aö
auka fjárveitingu til sjóösins.
Höröur Magnússon bílstjóri: Vanda
Lánasjóðsins á aö leysa meö því aö
senda alla námsmenn á togara.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
) j 1 f 1 &
í’ JSI
L XL ^ ^
Wk.ZÍÆki 'Æh im* Aj
Hlaupið með ólympíueldinn i Moskvu árið 1980, þegar Bandarikjamenn
mættu ekki tilleiks.
Olympíuleikarnir
í Los Angeles
Hvað um f réttamennina,
eru þeir ekki f hættu?
Kolbeinnskrifar:
Mig langar aö gera athugasemd viö
kjallaragrein sovéska blaöafulltrúans
sem birtist í DV fyrir stuttu.
Þar rökstyður hann þá ákvörðun
Sovétmanna aö mæta ekki á ólympíu-
leikana í sumar í Los Angeles. Meðal
annars ber hann saman ákvörðun
Bandaríkjanna og fleiri þjóöa um aö
mæta ekki á OL1980 sem haldnir voru í
Moskvu.
Þarna er aö mínum dómi ekki hægt
aö líkja þessu tvennu saman. Carter,
þáverandi forseti Bandaríkjanna, tók
þessa ákvörðun til aö mótmæla innrás
Sovétmanna í Afganistan og studdu
margar þjóöir hana meö því annaö-
hvort að mæta ekki eöa þá aö leyfa
ekki aö fáni landa þeirra yröi dreginn
aö húni, né heldur þjóösöngurinn leik-
inn, þegar verölaunaafhendingar fóru
fram.
Og mér er spurn hvort Sovétmenn
séu ekki uggandi um öryggi þeirra 200
manna, þar á meöal fréttamanna, sem
þeir senda á leikana, úr því þeir þoröu
ekki aö senda keppnisfólkiö.
Samhygðarplakötin:
Eiga fleiri von
á reikningi?
Olöf 6874-8429 skrifar:
Mikiö varð ég hissa þegar ég las
frétt um að borgin hefði ákveðið að
senda Samliygö reikning vegna
hreinsunar á plakötum sem Sam-
hygöarfélagar hengdu upp aöfara-
nótt 1. maí sl. og var borgin búin aö
ákveöa upphæðina áöur en hreinsun-
innivarlokiö.
Þessi plaköt voru fyllilega í anda
dagsins og ólikt meira afgerandi en
önnur plaköt eins og t.d. „Hauöur
fyrsti maí” en þau plaköt voru komin
upp löngu fyrir fyrsta maí og misstu
þar af leiðandi marks, enda orðin dá-
lítið „þreytt”.
Eg hef undanfarin ár tekiö þátt
sem sjálfboðaliði í vorhreinsun hér í
Breiöholtinu þ.e.a.s. í hverfinu sem
ég bý í. Aldrei hefur þaö hvarflað aö
mér að rétt væri aö senda borginni
reikning fyrir þaö, hvað þá aö flokka
rusliö og senda viökomandi reikning.,
T.d. tók ég nú sérstaklega vel eftir
því hverjum rusliö ætti að tilheyra,
vegna áðurnefndrar fréttar. Þar var
mikiö af umbúðum af Prince Polo,
plastpokum utan af mismunandi
samlokum, ógrynni af svala og kókó-
mjólkurfernum og þá áttu Kók og
Pepsí sinn hlut, bæði í pappaílátum
og brotnum flöskum. En verst þótti
mér að þurfa að hreinsa upp hunda-
skítinn.
Því hlýtur að vakna sú spum-
ing, hvort hér eigi eftir að flokka
rushð sem borgin sér um að hreinsa.
Eiga kommúnistar, kvennalistinn,
Sól hf., Mjólkursamsalan, hundavin-
ir, o.fl. lika von á reikningi frá borg-
inni?
Ef ekki, þá finnst mér ofsóknarlykt
af þessu á hendur fólki sem er aö
vinna aö bættu mannlífi og hefur nú
tekiö aö sér verðugt verkefni, sem er
að vinna gegn þvi böli sem atvinnu-
leysi er og má segja aö sé hinn mesti
sóðaskapur í hverju þjóðfélagi þar
semþaðeraöfinna.
Af slátur
gróða
Jónasar
—aths. vegna kjallara
Jónasar Guðmundssonar
Árni S. Jóhannsson skrifar:
Löngum hefur tíökast á Islandi aö
menn f æru ungir að vinna fyrir sér.
Reyndu menn stundum fyrir sér á
mörgum sviðum og festust við fátt.
Gjarnan töldu þessir menn sig
margfróöa og reynsluríka og því
geta f jallaö um hin aðskiljanlegustu
málefni af þekkingu, meðbræðrum
sínum til upplýsingar og eftir-
breytni.
Fyrir tilviljun barst mér í hendur
DV, frá 13. apríl. Þar skrifar Jónas
Guömundsson, rithöfundur, af anda-
gift og einlægni þess sem af brýnni
nauðsyn bendir meöbræðrum sínum
þar sem miöur fer í þjóðfélaginu.
Ekki tel ég ástæöu til að svara rit-
höfundinum nema að því leyti sem
grein hans snýr aö því félagi sem ég
veiti forstööu, Sölufélagi Austur-
Húnvetninga.
Eg hef það fyrir satt aö Jónas hafi
lokiö prófi til stýrimanns og þá
væntanlega lært eitthvað í reikningi.
Væntanlega hefur honum þá líka
veriö kennt eitthvaö um rekstur
skipa og liöi í rekstri sem nefnast
fjármagnskostnaður, viðhald og af-
skriftir. Jafnvel kann hann aö hafa
heyrt nefnda liöi eins og tryggingar,
opinber gjöld og viðhald.
Meö samanburöi viö fomar skóla-
bækur hefði hann þá komist aö því að
í staðhæfingu hans á afkomu frysti-
húss SAH 1979 vantar alla þessa
liði í „dæmiö” hans enda eru þeir
taldir í rekstrarreikningi félagsins
fyrir þaðár.
T.d. eru afskriftir fasteigna félags-
ins áriö 1979 33,5 mBlj., afskriftir véla
10,9 millj. og viöhald og rekstur 37,5
millj. Opinber gjöld og tryggingar
31,6 mUlj.
Bókfært nettóverð fasteigna og
véla var 788,8 millj.kr. ^
Hlutur frystUiúss í fasteignum fé-
lagsins var50,9%.
Mér þætti vænt um ef rithöfundur-
inn vUdi nú vera svo elskulegur að
reikna fyrir mig „gróöann af
geymslu ketsins” þegar tekiö hefur
veriö tillit tU áöumefndra talna og
eðlUegra vaxta af því fé sem bundið
er í frystihúsi félagsins.
Sundurliöað svar óskast birt á viö-
eigandi hátt.
Um bókhaldskúnst og „ólöglegt”
.frystihús 1981 bendi ég rithöfundin-
um einfaldlega á að lesa ársskýrslu
SAH 1981. Stýrimenn hljóta aö vera
læsir.
Það er svo aftur umhugsunarefni
hvort atvinnumálum rithöfundarins
er svo iUa komið aö betra sé fyrir
hann aö segja ósatt og fara meö
firrur en vinna fyrir sér á annan
hátt.
Þér er því velkomið, Jónas minn,
að koma í vinnu í sláturhús SAH
næsta haust.
Eg skal svo skreppa meö þér ein-
hverja helgina tU bændanna hér í
kring. Þar hittiröu menn sem vant-
aði m.a. 3,2% á fufit verö þess kínda-
kjöts sem þeir lögðu inn hjá SAH
1982.
Varla hefur þaö veriö vegna of
mikils „sláturgróða” félagsins.
Þegar þú síðan hefur raunverulega
kynnt þér málin skulum viö taka upp
að nýju uppfræðslu fyrir lesendur
DV um „sláturgróða”.
Ættu ekki að gefa
þessar gjaf ir
G.S. skrifar:
Vegna þessa uppistands sem er út af
gjöf Landsvirkjunar, vU ég segja aö í
gegnum árin hefur maöur aUtaf heyrt
orðróm um óhóflega eyöslu í þessari
stofnun og gaman væri aö vita hvaö er
til í því. Mér finnst aö opinberar stofn-
anir eigi ekki aö hafa leyfi til aö fara
svona meö almannafé.
Tveimur hjólum stolið
Sveinn skrifar:
Synir minir tveir uröu fyrir því
óhappi að reiðhjólum þeirra var stoUð,
ööru í október sl. og hinu nú í byrjun
maí.
Þetta eru forláta Scauff reiöhjól, 5
gíra, sem eru mjög dýr og þeirra er
sárt saknað. Þau voru bæöi grá meö
svörtum brettum og álteinum og gjörð.
Ef einhver veit um þessi hjól og get-
ur skfiað þeim er honum heitið fundar-
launum. Þetta er á Háaleitisbraut 10
ogsíminner 82516.
Laugardagslokun verslana:
Austri og Suðri- púkablístrur kerfisins
Vestri skrifar:
Nú hafa Suðri og Austri sameinast
í trúnni á aUsherjarhaftakerfi í
verslunarháttum á höfuöborgar-
svæðinu. Síöast er þaö Austri sem
kveður sér hljóös hér í lesendadálki
DV og getur ekki oröa bundist vegna
þess að Vestri stingur upp á aö komiö
veröi á vaktafyrirkomulagi i
verslunum um helgar.
Austri telur aö yfirgnæfandi meiri-
hluti verslunarfólks sé húsmæöur.
Má vera að svo sé og er þá ekki að
furða þótt Austri sé óánægður. Þeir
eru margir, þaö er satt, sem senda
konur sínar út að vinna og það meira
að segja aUa virka daga og ætlast til
aö þær sinni húsmóðurhlutverki að
auki þegar heim kemur.
Og undir það skal tekiö aö ofverk
væri að ætla þeim konum aö bæta viö
sig helgarvinnu, þótt einhver eigin-
maöurinn myndi ekki telja það nema
sjálfsagt.
Hitt er annaö mál að það eru til
fleiri þegnar í þjóöfélaginu en hús-
mæður og eiginkonur. Þaö er mikið
af einhleypu fólki Uka, þ.á m. nem-
endur, t.d. þeir sem núna sjá ekki
fram á aö fá neina atvinnu, einmitt
yfir sumarmánuöina. Þeir væru
áreiöanlega fegnir aö komast í af-
leysingavinnu um helgar í verslun-
um og leysa þreytt verslunarfólk af.
Og enn skal mótmælt þeirri bábfiju
aö þjónusta verslana irni kvöld og
helgar hækki vöruverð. Þaö er ekki
staðreynd hér þótt verslanir hafi
haft opiö um helgar, hvorki á Sel-
tjarnamesi, né annars staðar á land-
inu og hvergi eriendis.
Auðvitað munu Austri og Suðri
hrósa happi í lokin aö því er varöar
opnunar/lokunartíma verslana, því
hér breytist ekki neitt og hinn þögU
meirihluti má sín einskis gagnvart
„púkabUstrum” kerfisms sem aUt
drepa niður í takt viö verkalýðsfor-
kóUa á borð viö þá er stjóma VR meö
harðrihendi.
Og er ekki kveöja Austra til hins
almenna neytanda dæmigerö , (orö-
rétt úr lesendabréfi hans). „Ykkar
líkum er engm vorkunn aö drattast
út i búö á skikkanlegum tíma í staö
þess aö vera eins og heimtufrekur
krakki...”. — Meö öðrum oröum:
Þetta er nógu gott fyrir ykkur, eins
og þaö er! Dæmigert úr kerfmu
gegnum aldh-nar.