Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Síða 21
DV.MÁNUDAGUR 4. JÚNI1984.
21
Besti
leikur
sumarsins
28
Enskir
steinlágu
áWembley
23
Vítiog
Keflavík
efst
27
Varamaður
skoraði
réttílokin
22
Amór
enn hjá
læknum
25
Einar og Iris banda-
rískir háskólameistarar
— Einar náði mjög góðum árangri og íris setti nýtt íslandsmet. Þórdís önnur
í hástökki en Vésteinn var óheppninn að sigra ekki í kringlukastinu
Frá Sigurði Jenssyni, fréttamanni DV
í Bandaríkjunum.
Islenska frjálsíþróttafólkið gerði
garðinn frægan á háskólamótinu í
Eugene í Oregon. Þau Einar Vil-
hjálmsson, UMSB, og íris Grönfeldt,
UMSB, urðu háskólameistarar í sínum
greinum, spjótkastinu. Þórdís Gisla-
dóttir, ÍE, varð í öðru sæti í hástökkinu
en hún var háskólameistari bæði 1982
og 1983. Þá varð Vésteinn Hafsteins-
son, HSK, fjórðl í kringlukasti og var
þar heldur óheppinn. Átti hárfin ógild
köst sem voru mun lengri en sigurveg-
arinn í kcppninni náði.
Einar Vilhjálmsson náði sínum
þríðja besta árangri í keppni í spjót-
kasti þegar hann sigraði örugglega í
keppninni í Eugene. Hann kastaði 89,62
metra eöa næstum þremur metrum
lengra en annar maður í spjótkastinu.
Það var Bretinn Roald Bradstock sem
kastaði 86,70 metra. Á mótinu kepptu
allir bestu frjálsíþróttamenn hinna
ýmsu háskóla í Bandaríkjunum. Sig-
urður Einarsson, Ármanni, komst
einnig í úrslit í spjótkastinu. Náði sér
þar ekki vel á strik og varð að láta sér
nægja tólfta sætið. Kastaði 73,35 m eða
um tíu metrum frá sínum besta
árangri.
íslandsmet Jrisar
Iris Grönfeldt vann öruggan sigur í
spjótkasti kvenna og varð háskóla-
meistari USA eins og Einar. Hún setti
nýtt Islandsmet, 56,14 m, og er það
þriðja Islandsmet hennar í vor og sum-
ar í keppni í Bandaríkjunum. Þórdís
Gísladóttir varð að láta af hendi meist-
TCELANI
Rinnr Vflhjálmsson.
Iris Grönfeldt.
Metþátttaka
í Los Angeles
Þó Sovétríkin og nokkur önnur
lönd taki ekki þátt í ólympíuleikunum
í Los Angeles í sumar verður þar þó
metþátttaka þjóða. Þar verða
keppendur frá 137 þjóðum eftir því sem
talsmaður bandarísku ólympíu-
nefndarinnar skýrði frá í Los Angeles
á laugardag. Þá rann út þátttöku-
frestur á leikana. Þá hafði ekkert
heyrst frá Angola, Jordan, Lesotho og
Somaliu og ekki vitað hvort þessi lönd
verða með.
Þau lönd sem tilkynnt hafa að þau
taki ekki þátt í leikunum eru
Afganistan, Búlgaría, Kúba, Tékkó-
slóvakía, Eþiópía, Austur-þýskaland,
Ungverjaland, Laos, Mongolía,
Norður-Kórea, Pólland, Suður-Jemen,
Vietnam, Albania og lran.
Ingimar til
Stjörnunnar
Ingimar Haraldsson, fyrrum lands-
liðsmaður í handknattleik úr Haukum,
hefur gengið til liðs við 1. deildarlið
stjörnunnar í Garðabæ. Ingimar er
snjall linumaður og góður varnarleik-
maður. Hann mun koma til að styrkja
liö Stjörnunnar. -SOS
Mesta þáttaka áður á ólym-
píuleikum var í Miinchen í Vestur-
Þýskalandi 1972. Þar voru þátttöku-
þjóðir 122. hsim
Heimsmet
íboöhlaupi
Austur-þýsk boðhlaupssveit, þær
Kerstin Walther, Sabine Busch,
Dagmar Ruebsam og Marite Koch,
stórbætti heimsmetið í 4x400 m boö-
hlaupi kvenna á móti í Erfurt í gær,
hlupu á 3:15,92 mm min. Eldra heims-
metið var 4:19,04, sett á Evrópu-
meistaramótinu 1982 og voru sömu
stúlkur í sveitinni nema hvað Walter
hljóp í stað Kerstin Siemon. I kariaboð-
hiaupinu setti sveit Austur-Þýskalands
nýtt Evrópumet, það er í 4 X 400 m.
Hljópá 3:00,07 mín.
A mótinu í Erfurt á laugardag náði
Marite Koch besta heimstímanum í ár
í 400 m hlaupi. Hljóp á 48,86 sek. Mjög
góður árangur náðist í spjótkasti. Uwe
Hohn, nýi Evrópumethafinn, sigraði.
Kastaði 93,80 m. Heimsmeistarinn
Michel Detlef kastaöi 92,98 og varð
annar. hsím.
aratitilinn i hástökkinu, sem hún hafii
unnið tvö síöustu ár. Þórdis stökk 1,84
m en sigurvegarinn Tonya Alston,
USA, stökk 1,86 metra. Þórdís náði því
ekki eins góðum árangri og þegar hún
sigraði.
Vésteinn Hafsteinsson, HSK, var
óheppinn i kringlukastinu. I undan-
keppninni kastaði hann 61,12 m og
tryggði sér sæti í úrslitum. Þar var
hann fjórði sæti með 62,60 metra en
John Brenner, USA, sigurvegarinn
kastaöi 63,40 metra. Vésteinn átti tvö
köst talsvert lengri, sem voru dæmd
ógild eftir talsverðar vangaveltur
dómara, einkum yfir kasti hans sem
var um 65,50 m. Þá átti hann annað
kast rétt yfir 64 m sem einnig var
dæmtógilt.
Þá keppti Oddur Sigurðsson, KR, í
400 m hlaupi en komst ekki í úrslit.
Hljóp á 46,80 sek. og var því langt frá
sínum besta árangri. Hann var kvefað-
ur og naut sin ekki i hlaupinu í undan-
rás. Varð fjórði í sinum riðli. Mjög
hvasst var í Eugene fyrstu keppnis-
daga en mótið hófst á miövikudag og
lauk á laugardag. Veðrið varð skárrra
eftir því sem á vikuna leið og í mörgum
greinum náðist mjög góður árangur.
Nánar er sagt frá úrslitum á mótinu á
næstusíöu.
Árangur Einars í spjótkastinu er
mjög góður og allt stefnir nú í að hann
nái mjög góðum árangri á ólympíuleik-
unum í Los Angeles í ágúst. Islands-
met hans er 92,42 m og hafa aöeins
tveir austur-þýskir spjótkastarar kast-
að lengra í ár.
hsím.
Þórdís Gísladóttir.
Enn nýtt heims-
met h já Bubka!
— stökk 5,88 m í stangarstökki á móti í Frakklandi
m í hástökki kvenna og heimsmet-
hafinn í langstökki kvenna, Anisoara
Cusmir, Rúmeníu, stökk 7,03 m í lang-
sókki. hsím.
COELANGAR AÐ
VERJA TITILINN
— hefur enn ekki verið valinn til að hlaupa
1500 míLA
„Eins og mér gengur núna í hlaupunum yrði ég fyrir miklum
vonbrigðum ef ég fengi ekki að verja ólympíputitil minn í 1500 m á leikun-
um í Los Angeles,” sagði Sebastian Coe, enski hlauparinn frægi, eftir að
hann hafði unnið auðveldan sigur á vegalengdinni á móti á Crystal Palace
leikvanginum í Lundúnum á laugardag. Coe lagði ekkert að sér og sigraði
á 3:43,11 mín., fimmtán metrum á undan þeim sem varð í öðru sæti.
Coe hefur þegar verið vaiinn í 800 m hlaupið á ólympíuleikunum. Hanu
á heimsmetin i 800,1000 m og míluhlaupi. 11500 m hafa Bretar valið Steve
Cram, heimsmeistarann, og Steve Ovett, heimsmethafann, og Coe vonar
að hann verði þriðji Bretinn þar. -hsím.
Pétur Ormslev
aftur til Fram
- hef ur tilkynnt félagaskipti úr Fortuna Diisseldorf
Sovéski stangarstökkvarinn
Sergei Bubka setti nýtt heimsmet í
stangarstökki á móti í Saint Denis í
Frakklandi á laugardag. Stökk 5,88 m í
fyrstu tilraun. Annaö heimsmet hans á
viku. I Bratislava í Tékkóslóvakíu
stökk hann 5,85 m og bætti heimsmet
Frakkans Thierry Vigneron um tvo
sentímetra. Það var 5,83 m.
Á mótinu í Frakklandi stökk Bubka
auöveldlega yfir 5,70 og 5,80 m. Lét
síðan hækka í 5,88 m og fór yf ir. Margir
eru nú famir að reikna með því að
hann verði fyrsti maður tii að stökkva
yfir 6 metra í stangarstökkinu.
Fyrrum heimsmethafinn Vigneron
varð annar með 5,70 m. Tókst ekki að
stökkvayfir 5,75m.
Af öörum árangri á mótinu má
nefna að Alberto Juantorena, Kúbu,
sigraði í 800 m á 1:47,31 mín. Heims-
methafinn Tamara Bykova stökk 1,96
Pétur Ormslev.
Pétur Ormslev, iandsliösmaður í
knattspymu, sem hefur leikið með
Fortuna Diisseldorf tvö sl. keppnis-
tímabil, hefur ákveðið að yfirgefa her-
búðir v-þýska liðsins og koma heim til
Islands.
Pétur hefur tilkynnt félagaskipti í
Fram og verður hann löglegur með
Framliðinu 30. júní þannig aö hann
getur leikið með Fram gegn KA1. júlí.
Framarar bíða nú eftir aö v-þýska
knattspymusambandið samþykki
félagaskiptin.
-sos