Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Qupperneq 22
22
DV.MÁNUDAGUR 4. JUNI1984.
—Bílabúub
KAM M /“»5 Vagnhöföa 23
■■■ iWV 770 Reykjavik
Aukahlutir Varahlutir Sérparrtanir Sími 685825
VAGNHJ@LIÐ
Vélaupptekningar
Vatnskasaar og vélahlutir
I amerlska bfla á lager.
Mjög hagstætt verö.
Aðalfundur SÍF
Aðalfundur Sölusambands íslenzkra fiskframleið-
enda fyrir áriö 1983 verður haldinn að Hótel Sögu
7. júní nk. og hefst kl. 10 f .h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
STJÖRN SÖLUSAMBANDS
ÍSLENZKRA FISKFRAMLEIÐENDA.
Eitt mikilvægasta atriði varðandi rafsuðu er að velja rétta gerð
rafsuðuvírs. Til þess að hámarksgæði verði á suðu er nauðsyn-
legt að vírinn sé valinn með tilliti til allra aðstæðna.
Með þessa staðreynd í huga eigum við til á lager mikið úrval af
rafsuðuvírauktækjaogfylgihluta. Tæknimennokkarveita
fúslega allar upplýsingar og eru þér innan handar um valið.
Hafið samband við söludeild.
FORYSTA ESAB ER TRYGGING FYRIR GÆDUM OG GÚÐRI ÞJÖNUSTU
= HEÐINN =
VÉLAVERZLUN-SlMI: 24260
Seljum einnig hleðslustein til hleðslu útveggja
(gamli, góði holsteinninn).
*«<A *«KA
Skipholti 35. Reykjavik,
s. 8 35 22 - 8 35 46
Borgarnesi s. 93-7113
Afgreiðslustaður: Dalshrauni 8 Hafnar-
firði, símar 50877 og 50869.
LÁS-STEINN
TIL HLEÐSLU í GÖRÐUM
myndar fallegan hleðsluvegg sem heldur
vel við jarðveg.
>«
(þróttir (þróttir(þróttir
Varamaðurinn skor
aði rétt í leikslok
— og Breiðablik vann sinn fyrsta sigur
í 1. deild í suntar á Akureyri
Frá Pétrí Ólafssyni, fréttamanni
DV á Akureyri.
Blikamir úr Kópavogi nældu sér
í sinn fyrsta sigur í 1. deildinni í
sumar þegar þeir sigraðu Þór á
Akureyrí í heldur þófkenndum ieik
á laugardag, leik, sem var litið fyrir
augað, mest miðjuþóf. Varamaður
Breiðabliks, Þorsteinn Hilmarsson,
skoraði eina mark leiksins tveimur
mínútum fyrír leikslok. Gefið inn í
vítateiginn og Þorsteinn skallaði
knöttinn yfir Pál Guðlaugsson
markvörð sem hafði hlaupið út í
teiginn og í markið. Blikamir
fögnuðu gífurlega, hreint eins og
þeir væra að sigra í íslandsmótinu.
Sterk norðangola setti talsverð mörk
á leikinn.
„Þetta var opinn leikur og hvort
liðið sem var gat sigrað. Jafntefli
hefði verið sanngjörn úrslit," sagði
Magnús Jónatansson, þjáifari
Breiðabliks, eftir leikinn.
Þór lék móti golunni í fyrri hálf-
leik og var þá betra liðið. Lítið þó
um færi. Kristján Kristjánsson átti
gott skot á Blikamarkið af löngu
færi á 30. mín. en Friðrik Friðriks-
son varði vel. Fimm mín. sfðar
komst Kristján einn í gegn en spymti
varamaður og skoraði sigurmark
Breiðabliks tveimur mínútum fyrir
leikslok.
knettinum í hliðamet marksins. Á
lokamínútu fyrri hálfleiksins átti Sig-
urjón Kristjánsson gott skot á mark
Þórs en Páll varði.
Síðari hálfleikurinn var mjög þóf-
kenndur, mest miðjuþóf og lítið
sem ekkert um færi. Langskot mest,
sem reyndust markvörðunum ekki
erfið. Magnús, þjálfari Breiðabliks,
setti báða varamenn sína inn á
nokkm eftir miðjan hálfleikinn og
það bar árangur þegar Þorsteinn
skoraði rétt í lokin.
Ólafur Björnsson, fyrirliði
Breiðabliks, var mjög sterkur í vörn-
inni og Friðrik öruggur í markinu.
Páll átti einnig góðan leik í marki
Þórs. Þá áttu Kristján og Jónas
Róbertsson góðan leik. Liðin voru
þannig skipuð:
Þór: Páll, Jónas, Árni Stefánsson,
Óskar Gunnarsson, Sigurbjörn
Viðarsson, Guðjón Guðmundsson,
Nói Björnsson, Bjami Sveinbjöms-
son, Kristján, Halldór Áskelsson og
Óli Þór Magnússon. Breiðablik:
Friðrik, Benedikt Guðmundsson,
Ómar Rafnsson, Loftur Ólafsson,
Ólafur, Trausti Ómarsson, Vignir
Baldursson, Jóhann Grétarsson, Jón
Einarsson (Þorsteinn Hilmarsson 73
mín.), Ingólfur Ingólfsson (Guð-
mundur Baldursson 77 mín.) og Sig-
urjón. Dómari Baldur Scheving.
Áhorfendur 686.
Maður leiksins: ÓlafurBjömsson,
Breiðabliki. PÓ/hsím.
Háskólamótið í Oregon í USA:
Sigurvegarar f rá
mörgum löndum
besti heimsárangurinn í 3000 m hindrunarhlaupi og 800 m
Bandaríkjamaðurínn Faríey Ger-
ber náði besta heimstímanum í ár í
3000 m hindrunarhlaupi þegar hann
sigraði á vegalengdinni á stúdenta-
leikunum bandarísku í Eugene, Or-
egon, á föstudagskvöld. Hann hljóp
á 8:19,27 mín. Bætti tíma sinn veru-
lega. Átti best áður 8:24,72 mín., og
aðeins einn Bandaríkjamaður hefur
náð betri tíma. Henry Marsh 8:12,37
mín.
Julius Korir frá Kenýa, sem var
talinn sigurstranglegastur, varð ann-
ar í hindrunarhlaupinu á föstudag
eftir hörkukeppni við hinn 24 ára
Gerber. Tími Korir var 8:19,85 mín.
Joaquim Cmz, hlauparinn kunni
frá Brasilíu, varð háskólameistari í
800 m hlaupinu. Hljóp á 1:45,10
mín., sem er besti heimstíminn í ár.
Hlaupið var mjög erfitt vegna mikils
hvassviðris. Earl Jones, USA, varð
annar á 1:45,70 mín.
Bandaríkjamaðurinn Danny
Harris bætti eigið piltamet í 400 m
grindahlaupi, þegar hann sigraði á
48,81 sek. Hann er aðeins 18 ára og
hljóp á 49,16 sek. fyrir mánuði. f
400 m grindahlaupi kvenna sigraði
Nawal E1 Moutawakit frá Marokkó.
Hljóp á 58,84 sek., sem er nýtt
mótsmet.
Breski samveldismethafinn Matt
Milsham, Bretlandi, varð háskóla-
meistari í sleggjukasti. Kastaði 74,74
m. Kjell Bystadt, Svíþjóð, varð ann-
ar með 73,28 m og Robert Weir,
Bretlandi, sem sigraði í greininni í
fyrra, varð nú þriðji með 72,48 m.
Bandaríkjamaðurinn Ed Eyestone
sigraði í 10.000 m á 28:05,30 mín.
en þar kom mjög á óvart að Gidamis
Shahanga, Tanzaníu, sem sigraði á
Bandaríkjamaðurínn John Brenn-
er varpaði kúlunni 21,92 metra -
fimmti besti árangur í greininni sem
náðst hefúr í heiminum - þegar
hann sigraði í kúluvarpinu á stúd-
entaleikunum í frjálsum íþróttum í
Eugene, Oregon, á laugardag.
Michael Carter varð annar. Varpaði
21,76 metra í sjöttu og síðustu til-
raun sinni. Carter á met í sigrum á
NCAA-mótunum. Hefur sigrað átta
sinnum á innan- og utanhússmótum
stúdenta í kúluvarpi.
Bandaríkjamaðurinn Mike Con-
ley sigraði í þrístökki, stökk 17,36
m sem er annar besti árangur Banda-
ríkjamanns í greininni. Ánnar varð
Joseph Taiwo, Nígeríu, með 17,18
m.
Brasilíumaðurinn Joaquim Cruz,
sem sigraði í 800 m á föstudag, vann
auðveldan sigur í úrslitum 1500 m
hlaupsins á laugardag og eftir þann
sigur hafði lið Oregon-háskólans
tryggt sér sigur í stigakeppni karla f
keppninni. Cruz hljóp á 3:36,48
vegalengdinni í fyrra, varð nú aðeins
í áttunda sæti á 28:54,16 mín. Besti
tími hans í fyrra var 27:46,93 mín.
- hsím.
mín. írinn Marcus O’Sullivan varð
annar á 3:37,40 mín. Tveir Kenýa-
menn urðu fyrstir í 5000 m hlaupinu.
Julius Korir sigraði á 13:47,77 mín.
og Peter Koech varð annar á
13:48,70 mín. hsfm.
Heimsmet
í lyftingum
Alexander Guniashev, Sovétríkj-
unum, setti tvö ný heimsmet í
þungavigt í lyftingum á móti í
Rheims í Frakklandi á föstudags-
kvöld. Hann snaraði 208,5 kg, sem
er hálfú köói meira en heimsmet
hans var, og snaraði síðan 211 kg.
Þar með bætti hann heimsmet Alex-
'anders Kurlovic, Sovétríkjunum,
sem fyrr á mótinu hafði snarað 210,5
kg. Samanlagt náði Guniashev 465
kg og bætti þar með eigið heimsmet
um 2,5 kg. Það setti hann í Lenin-
grad í desember síðastliðnum.
hsím.
STÓLPAÁRANGUR
í KÚLUVARPINU
(þróttir
(þróttir
Iþróttir