Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Blaðsíða 45
45
Sviðsljósið
DV.MÁNUDAGUR 4. JUNÍ1984.
Feðgarnir smávöxnu, Michael og Kirk Douglas.
Lítil hetja
Hvort sem menn trúa því eöa ekki þá
er gamla Hollywoodbrýnið hann Kirk
Douglas ekki nema 168 sentímetrar á
hæð. Maður hafði haldið að þessar
hetjur hvíta tjaldsins væru minnst 2
metrar á hæð. I myndum sínum virðist
Douglas alltaf vera stærri en hann er í
raun og veru. Það er vegna þess að
hann er með sérstakt skóinnlegg og
kvikmyndatökuvélinni er aldrei beint
þannig að honum að í ljós komi hversu
lítill hann er.
Þessar upplýsingar birtust í blaði
einu í New York og er haft fyrir satt að
leikarinn smávaxni hafi orðið trítil-
óöur. Hringdi hann í ritstjóra blaðsins
og heimtaði skaðabætur vegna þess-
arar ærumeiðandi aðdróttunar. Rit-
stjórinn sagði það gott og blessað en
bætti því við hvort ekki væri aUt í lagi
aö senda mann til hans meö málband.
Þá skeUti Douglas á.
FLÓKIÐ HJÓL
Við fyrstu sýn mætti ætla að
drengirnir á myndinni reyni að hjóla
hvor í sína áttina og standi því i stað.
Ekki er allt sem sýnist. Drengjunum
sem búa í Loxstedt i Þýskalandi, hug-
kvæmdist að tengja keöjurnar saman
á sérstakan hátt, þannig að sá sem
situr vinstra megin hjólar í sömu átt og
sá er situr hægra megin. Myndin var
tekin þegar drengirnir hjóluöu allt
hvað af tók til hægri.
LIFSHÆTTU-
LEG ÍÞRÓTT
SérkennUeg réttarhöld standa nú
yfir í einu úthverfa San Fransiseo-
borgar. Eigendur sex einbýlishúsa
hafa höfðað mál gegn fasteignasölu-
fyrirtæki vegna þess að það seldi þeim
hús sem eru staðsett aUtof nálægt golf-
veUi. Hver fjölskylda hefur krafist 2
miUjóna doUara skaöabóta.
Fjölskylda nokkur sem býr við 13.
teig hefur undanfarin sex ár safnað
saman þeim golfkúlum sem lent hafa á
húsinu og er þær voru taldar reyndust
þær vera um 9.000 talsins. Þetta þýðir
að kúlurnar lentu aö meðaltali 6
sinnum á húsinu á dag og um 30 til 40
sinnumumhelgar.
Onnur fjölskylda hefur í gegnum
árin verið öllu lánsamari því hún hefur
búið við holu númer 9. Á húsi hennar
hafa aðeins lent 2.100 kúlur. Þessar
fjölskyldur hafa haldið því fram við
réttarhöldin aö búseta þama jafnist á
við að búa á skotbakka. Kúlnahríðin
væri svo yfirgengUeg að ekki væri
þorandi að senda börnin út í garð. Ein
fjölskyldan reyndi jafnvel að verja sig
og reisti sex metra hátt net vaUar-
megin við húsiö. Þaö hafði engin áhrif,
kúlurnar dundu eftir sem áöur á hús-
inu sem sýnir aö lélegum golf-
iökendum er ekkert órpögulegt.
Nýkomið.
Sumargarn frá Anny Blatt
Opið virka daga: 10:00 -18:00
Laugardaga: 10:00-16:00